Fríkirkjan - 01.05.1902, Blaðsíða 16
80
er komin upp? ÍM ekki verður þessi staurabrú í tjörninni
um aldur og æfi.
Laglegast hefði verið, að bæjarstjórnin hefði séð svo um,
að lagður væri vegur suður með tjörninni, þegar er fríkirkju-
menn höfðu fengið útmælingu undir kirkjuna á þessum stað;
því að það var sýnilegt, að þar mundi hljóta að koma vegur-
inn að kirkjunni. Þetta hefði «kki verið meira enn makleg
og mannúðleg tilhliðrun af hendi bæjarstjórnarinnar, þar sem
um kirkjubygging var að ræða, jafn þarflegt fyrirtæki.
En þetta gjörði bæjarstjórnin ekki, og hljótum vér að
virða svo, sem það hafi fremur verið af seinlæti heldur en
af hinu, að hún væri mótfallin kirkjubyggingunni. Yera má
og að hún, eins og sumir aðrir, hafi hugsað, að aldrei mundi
verða af byggingunni.
Nú, þegar sýnt er að kirkjan kemur upp, ætti bæjar-
stjórnin þegar í sumar eða haust að láta ieggja veginn að
henni, svo' að hann verði til jafnsnemma og tekið verður að
brúka kirkjuna.
Áheit til fríkirkjunnar.
Það er gamall og góður siður, að menn við ýms tækifæri gjöra
það heit með sjálfum sér, að ef þeim veitist sú eða sú ósk eða bæn,
þá skuli þeir sýna þakklæti sitt í verkinu með einhverju tilteknu, t. a.
m. með að gleðja einhvem fátækling eða leggja tiltekna tjárupphæð
til einhvers fyrirtækis eða einhverrar stofnunar.
Þannig hafa nokkrir menn heitið á fríkirkjuna, og eru komin inn
til hennar áheit þau, er nú skal greina:
Frá ónefndum...............................1 kr. a.
— '• Bjama Jónssyni trésmið . , . . . 10 — -
— ónefndri konu ........................2 — -
— Halidóri Olafusyni trésmið..............1 — -
Áheit þessi eru hérmeð auglýst eptir áskorun eins af áheitendum,
Bjarna Jónssonar, „öðrum til góðs eptirdæmis11. Enda er sjálfsagt að
auglýsa slíkt, bæði til þess, að gefendur fái séð það og til að þakka
fyrir kirkjunnar hönd.
Réttast væri að áheitendur segðu til nafna sinna, því að öðrum
kosti geta þeir ekki þekkt sín áheit í auglýsingunum. •
Útgefandi: Lárus Halldórsson, fríkirkjuprestur-.
Aldar-prentsmiðja.