Fríkirkjan - 01.06.1902, Page 14

Fríkirkjan - 01.06.1902, Page 14
94 um sé meinað að vera með í félagsskapnum, heldur af því að kirkjan kaþólska mun vera óvinveitt þessari hreifingu eins og öðrum hreifingum og félögum, sem hafa átt upptök sín meðal mótmælenda og starfa í evangeliskum anda. Pannig er al- kunnugt, hversu illa hinni kaþólsku kirkju hefur verið og er við biflíufélögin. Til skamms tíma hefur þessi kristilegi félagsskapur með- al ungra manna verið með öllu óþekktur hér á landi; enda er og eigi heldur iangt síðan að hreifing þessi hófst i öðrum lönd- um. Það er tiltölulega ný hreifmg; en hún hefur náð skjótri og mikilli útbreiðslu bæði í hinum gamla og nýja heimi. Félögin skípta nú orðið mörgum þúsundum. Hér á landi er hreifingin að eins í byrjun, hvort sem henni auðnast að ná nokkurri útbreiðslu meðal vor- eða ekki. í*að er að eins skammt síðan farið var að vekja máls á því, að æskilegt væri og nauðsynlegt að stofna kristiieg unglingaféiög hér á iandi. Það var gjört í „Kirkjublaðinu”. Gamali prest- ur, síra Hjörleifur Einarsson á Undirfelli, var fyrsti maðurinn tii að sjá og benda á þýðingu þessa málefnis; mun hann hafa komið upp einhverjum vísi ungiingafélags í prestakalii sínu; vera má og að það hafi verið víðar, en eigi höfum vér minni til, að vér hófum heyrt né séð þess getið. En árið 1898 kemur maður til sögunnar, sem hlýtur að teljast hinn eiginlegi höfundur þessa félagsskapar hér á landi. ]?að er síra Friðrik Friðriksson, núverandi prestur við holds- veikraspítalann, maður með eldlegum áhuga á að efla sannan og iifandi kristindóm. Hann hefur á þessum síðustu árum komið upp all-fjölmennu kristilegu félagi ungra manna- hér í Reykjavík. Eigi hefur hinni óþreytandi starfsemi hans að máli þessu verið veitt eins mikil eptirtekt, eins og hún hefði átt Bkilið. Priðja manninn verður að nefna. Það er séra Friðrik Hallgrímsson á Útskálum, ungur prestur og áhugamikill, sem hefur stofnað unglingafélag í prestakalli sínu. Vera má, að einhverjir fleiri prestar hafi komið á slíkum félagsskap i sóknum sínum; en eigi er oss það kunnugt. Yfir höfuð hefur málefninu enn sem komið er næsta lítið verið sinnt. Jafnvel hér í höfuðstaðnum, þar sem mest hefur

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.