Kirkjublað - 15.04.1934, Blaðsíða 6

Kirkjublað - 15.04.1934, Blaðsíða 6
100 KIRKJUBLAÐ verði látinn taka út dauðahegninguna í staðinn f.vrir fanga, sem hafði strokið. Þessi fangi er enginn annar en Bro. Eftir það að Hastig var flúinn frá kvalastaðnum, hafði hann gert upp reikningana við samvizku sína. — Hann náði í fötin af manninum, sem dáið hafði í kast- alanum, og dulbúinn þeim, flýði hann — ekki burt frá hörmungunum —heldur beint inn í kvalastaðinn sjálfan. — En þar tókst honum að fá áorkað einhverju,-aðeins feikna litlu, — en þó miklu meiru en nokkru sinni áður á æfinni. — Hann hafði rofið einn hlekkinn í kvala- keðju mannfélagsins, — hlekkinn, sem tengir saman mótgjörð og hefnd og nefnist hatur, og honum hafði tekizt að fá örfáa dauðadæmda menn til þess að gera hið sama. — Þannig lýkur „sögunni af manni einum og samvizku hans“. Höfundur birtir samtal við lesanda á undan sög- unni og gefur þar nokkrar bendingar, svo mál hans valdi ekki misskilningi. Hann játar þar, að hin pólitíska saga þjóðar hans, eins og hann rekur hana í skáldsögunni, sé aukaatriði. Hann gerir ráð fyrir því, að margir muni standa upp og vitna, að viðburðum sé ekki lýst með sögu- legri nákvæmni, en tilgangurinn sé að lýsa þ j á n i n g - u n n i . ,,Ekki þjáningu þinni eða minni, ekki þjáningu á- kveðinnar þjóðar, aldar eða stéttar, þótt svo kunni að virðast, heldur þeirri þjáningu, er beljar eins og elfar logandi eimyrju um jörð vora, en falla saman í fossum hér og' þar og mynda brennandi hringiðu af kvöl, — um þá þjáning, sem streymdi í dagrenning tímanna fram af frumuppsprettu lífsins og mun halda áfram fram á tímanna kvöld . . .“. Og í kvöld er blóði úthellt . . . Það berast til vor kvalastunur særðra og handtekinna manna sunnan úr Vín . . . , borg hinna glaðværu söngva. (í febráarmánuði 1934),

x

Kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.