Kirkjublað - 15.04.1934, Page 10

Kirkjublað - 15.04.1934, Page 10
110 KIRKJUBLAÐ En sem stofnun er kirkjan meira en vörður arf- gengra sanninda og aldagamallar reynslu. Sem lifandi heild er hún safnari nýrrar reynslu. Lífið er starf, skap- andi afl, sem ávallt leitar fram með nýjum myndum. Nú- tíð kirkjunnar, eins og alls, sem lifir, er fólgin í því, að þiggja og gefa, þiggja æðri mátt og veita hann sam- tíð sinni. Með ríkari hlutdeild í lífi og sannindum æðri veruleika, eignast mennirnir dýpri skilning, meira þrek, hærri hugsjónir, æðra markmið og göfugri anda. Þykir því mörgum, sem eftir megni líta hlutdrægnis- og öfga- laust á málið, það ólíklega mælt, er því er haldið fram, að kristin trú eigi lítið erindi til nútímans. Hitt mun sönnu nær^ að einskis þarfnist hann fremur. ¥<sindi ^ísindi efnishyggjunnar hafa á ýmsan hátt leikið kirkjuna hart. Þau hafa lamað vöxt hennar og vald með því að gera tortr-yggilegan málstað hennar og meginsannindi á ýmsa lund, og með einhliða menningaráhrifum hafa þau að ýmsu leyti lagt tálmanir í veg einstaklingsins, sem þrátt fyrir allt hafa einangrað hann í raun og veru, þrengt viðhorf hans og kippt úr andlegum vexti hans. Einstaklingurinn hefir bæði unnið og tapað andlega. Vinningurinn var vitsmunamegin, tap- ið trúarmegin. Og kirkjan tapaði. Það er oftast vandi að skera úr um það, hvort styttri tímabil séu hnigunar- eða framfaratímar, þegar á allt er litið. Breytingarnar og byltingarnar eru í því fólgn- ar, að vanrækt nauðsyn er uppfyllt eða umskipað önd- vegisverðmætum. Kirkjan hlýtur einnig að hafa þá sögu að segja. En því verður ekki neitað, að margt víxlsporið hafði kirkjan stigið. Þráfaldlega hafði hún grafið and- ann í bókstafnum, þráfaldlega hafði hún gleymt innri rækt fyrir ytra hag. Af þessu hlutust mörg slysin í sögu hennar, fyrr og síðar. Þegar svo við þetta bætist, að fólkið hefir jafnan næmari sjón á lággildin og veralcllega hluti, heldur en andleg verðmæti, þá hlaut svo að fara, að hraðfleygar nýungar trufluðu vanagang trúarlífs og andlegra mála.

x

Kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.