Kirkjublað - 15.04.1934, Blaðsíða 16
116
KIRKJUBLAÐ
l’að, sem að því sneri í greininni, var hvort sem er ekki annað en
alvörulaust, strákslegt háð. — Hitt var ádeila á einhverjar trúar-
skoðanir, sem Kirkjublaði koma ekkert við.
Nú nýlega hefir félag' þjóðernissinnaðra stúdenta tekið. að gefa
út blað, er það nefnir Mjölni. — Má ætla, eftir því sem það blað fer
af stað, að í hópi þjóðernissinnaðra menntamanna ríki lotning fyrir
kristinni lífsskoðun og hlýr hugur til kirkjunnar, því í þessum
tveim eintökum, sem út eru komin, er ráðist harðlega á skrif Nýja
Stúdentablaðsins um trúarbrögðin.
Til þess að sýna þeim lesendum Kirkjublaðs, sem ekki sjá
Mjölni, af hvaða hug er þar mælt um kirkjuna, má benda á niður-
lag fyrri greinarinnar:
„Kirkjan, vígi kristinnar lífsskoðunar i landinu, frjálslynd og
víðsýn menningarstofnun með vakandi skilning á fjölbreyttum, and-
legum þörfum einstaklinganna, er öruggasta vígið gegn villimennsku
kommúnistanna, ef hún rækir hlutverk sitt vel“.
.
I síðari greininni segir svo:
„Trúhneigðin er inngróin manneðlinu og víkur ekki frá því.
Hún heldur sífellt áfram að leita að lausnum á ráðgátum lífsins
og skilja æðri tilgang þess en baráttuna um brauð. Á lágu stigi vits-
muna og þekkingar er mannsandinn nægjusamur eins og barn. En
því hærra sem menn komast á þróunarbraut, þvi rneiri er máttur
þeirra til að setja sér háleit markmið og þvi meira vitrast þeim af
göfgi og tign þess alheims, sem þeir lifa í. Þvi hafa guðshugmyndir
mannkynsins sífellt verið að hækka og fegrast eftir því, sem tímar
liðu fram.
Stærsta synd kommúnismans er það, að hann vill stöðva þessa
þróun hjá mannkyninu. Með því að afneita tilveru mannssálarinn-
ar, með því að meta að engu siðferðileg verðmæti, með því að ein-
blina sífellt á hið ógeðslegasta og hraklegasta í mannlegu eðli, hafa
kommúnistar fyllt hugi sína því svartasta vonleysi, sem nokkur
kynslóð sögunnar hefir búið við“.
i. ....— ------------ —
KIRKJUBLAÐ
Málgagn Islenzku kirkjunnar, gefið út af Prestafélagi íslands.
Útgáfustjórn:
Séra PriSrik Hallgrímsson, dómkirkjuprestur.
— Ásmundur GuSmundsson, háskólakennari.
— Árni SigurSsson, frlkirkjuprestur.
Ritstjóri og afgreiðslumatSur:
Séra Knútur Arngrímsson, Vesturg. 17, Rvlk. Sími 307B.
Áskriítarver'ð fyrir árganginn kr. 3.00, er greiðist 1 tvennu lagi,
kr. 1.60 1. júnl og kr. 1.50 1. okt.
Útkomudagur 1. og 15. hvers mánaðar.
Prentaö I fsafoldarprentsmiðju h.f.