Vekjarinn - 01.01.1903, Blaðsíða 26
26
ugum líknsamur!" og spurningu fangavarðarins:
„Hvað á jeg að gjöra svo að jeg eignist eilíft líf?“
Leitaðu á fund Jesú Krists og gakk undir merki
hans. Ef dimmt er af efasemdum í kring um þig,
og þú veizt ekki, hvar þú getur sjeð Jesúm, þá lær
af dæmi Grykkjanna og snúðu þjer til þeirra, sem
þekkja hann, en gakk ekki á fund háðgjarnra og
vantrúarmanna, því þeir geta aldrei sýnt þjer Jes-
úm Krist. Það er opt hepppilegt að opna hjarta
sitt fyrir reyndum trúuðum manni,* 1) en allra bezt,
og heppilegast er þó að opna hjaria sitt fyrir guðs-
orði. Lestu og hlustaðu á guðsorð eptir því sem
þjer er frekast unnt, og láttu þjer elcki nægja að
heyra. Bæt ráð þitt, og set þjer það mark að hlýða
guðsorði alveg skilyrðislaust í hugsunum, orðum og
verkum, og gleymdu því ekki að drottinn segir í
lögmáii sínu: „Bölvaður sje sá, sem heldur ekki
öll orðin i þessu lögmáli og breytir ekki eptir þeim.“
Ef þú reynir þetta í fullri alvöru, og drogur
ekki úr kröfunum, færir ekki hugsjónirnar niður í
sorpið, þegai- þú sjerð, hvað kraptar þínir ná skammt,
þá geturðu nú kynnst sjálfum þjer 'betur en áður.
í’ótt, þú hafir áður talið þig einstaklega góðan og
vandaðan manp, muntu nú komast að raun um,
að þú ert ekki annað en vesall syndari, sem biýt-
!) Hlusta samt ekki á ráð þeirra, sem segja við leit-
andi sál sem andvarjiar mn frið við hcilagan guð: „Reyndu
að roka burtu þessar grillur með skemtunum ng glaðvœrð.11
l5etta eru ráð sálarmorðingjans, jafnvpl þótt pvcstur k.unnj
að flytja þau í'yrir hann,