Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Side 17
MATTUR HUGSANANNA.
161
lækningar og fl. þvíuml. Reir sem við það fást,
notfæra sér náttúrulögmál, sem er fyrir hendi,
mútt hugsunarinnar; og að sjúkdóma má bæta
°g lækna með þessu móti, vita allir, sem ann-
ars hafa ransakað þetta mál nokkuð frá rótum.
Furðuverk þau, sem vér lesum stundum sögur
aE eru ekkert annað en tilliðkun þessa lögmáls
v'ð menn, sem eru næmir fyrir áhrifum og þrá
hjálpina, og mæta þannig liðlega sterkri hugs-
un og vilja þess, sem hjálpar. Vafalaust hafa
mörg slík tákn og furðuverk gerzt í Lourdes
°g mörgum öðrum stöðum. Rað er engin skýr-
lng á þessu að segja það sé tóm ímyndun.
Auðvitað er það »eintóm ímyndun* — en það
er sú ímyndun, sem lœknar sjúklinginn, og ef
það er aðalatriðið, að sjúklipgnum batni, hvað
er það þá mætara, að það verði af einhverri
ölöndu úr lyfjabúð, heldur en af ímyndun hans?
Ef lækninum hepnast að bjarga sjúklingi sínum
^eð lyfjum sínum, þá segir hann ekki: »0 —
það var bara meðalið sem gerði það.» Eg
kannast að vísu við, að hér er ekki um nein
furðuverk að ræða; að kalla það svo, bendir
á vankunnáttu og vanþekkingu; en að neita
hví, að slíkt geti komið fyrir, bendir líka á
vankunnáttu. Og það bendir líka á hleypidóma,
bví að það er óskynsamlegur hleypidómur að
viðurkenna og trúa á furðuverk, sem hafa gerzt
fyrir um 1900 árum, sem engri ransókn er
°ú hægt að að koma, en þverneita alveg samkynja
furðuverkum, sem gerast á vorum dögum og
allir geta ransakað. Trúaðir menn, sem kallað-
lr eru, eru oft ærið blendnir í þessa átt. Þeir
^fúa á kraftaverk sinnar eigin kirkju — ef þau
eru nógu gömul, en vilja ekki kannast við
kraftaverk annara, einkum ef þau eru frá nýjum
h'mum. En það er ekki ráðvandlega teflt. Pað
getur eingöngu stafað af trúarlegum hleypidómi
að neita því sem mönnum líkar ekki, af því að
þeir vilja ekki að það geti stutt mál þess trú-
srfélags, sem ekki hefur sama einkennismiða
eins og manns eigin trú. Ressi hleypidómur
getur nú ekki staðizt lengur, því að fólk er nú
farið að skilja það, að það er náttúrulögmál,
sem öll hin svonefndu kraftaverk fara eftir; það
er æðri máttur, sem vinnur að þeim, með því
að færa sig niður á svæði hins jarðneska lífs
og laga sig eftir því. En í sjálfu sér eru furðu-
verkin ekkert meira undur en t. d. símtal, sem
villimenn álíta auðvitað furðuverk. Ef menn
meina með furðuverkum eitthvað, sem stríðir
á móti náttúrulögmálinu, þá eru engin furðu-
verk til. ÖII slík lög eru birting eða framkoma
einhvers í guðdóminum, en hjá og í honum
er livorki »umbreyting né umbreytingarskuggi«.
En ef menn segja að þau birti nothæti krafta,
sem fáir menn þekkja nokkuð til, vald viljans
yfir og á kröftum, sem flestum mönnum eru
ókunnir, og að hugsun hins sjúka sé fús 'til
að mæta hugsun læknisins og gefi þannig hugs-
un læknisins öflugri verkunarkraft — þá er það
alí satt og rétt. Eg viðurkenni að fullu mátt
trúarinnar, sem kallaður er.
Pað má oft heyra menn segja sem svo:
»Er það mögulegt að lækna sjúkdóma, sem ekki
eru í taugunum?« Það er einhver dularfull,
óransakanleg ástæða, sem sumir þykjast hafa
fyrir því, að toug'fl-sjúkdóma megi lækna með
hugsunarkrafti, en enga aðra. Það er engin
heimild fyrir þessari skoðun. Að vísu veitir
hugsuninni léttara að verka á taugasjúkdóma,
af því að taugarnar eru hinar eðlilegu tilfærur
hugsunarinnar til að birtast á jarðneska sviðinu.
F*að er því hægra að hafa áhrif á taugar en
á vöðva og bein. Taugavisnun er einn þeirra
sjúkdóma, sem enginn læknir getur læknað með
meðulum—en með dáleiðslum er hægt að lækna
hana. Eg hef ekki mikla reynslu í þessu af
sjálfri mér — eg hef ekki haft tíma til að fást
mikið við þesskonar lækningar —, en eg hef
þó verið þar viðstödd, að tveir blindir menn
voru læknaðir með mætti hugsunarinnar; þeir
voru blindir af því að rýrnun var að koma í
sjóntaugina, og höfðu læknar dæmt þá ólækn-
andi. Að lækna sár á sama hátt er stórum erf-
iðara, en þó getur það tekizt, sem sjá má af
tilraunum þeim, er gerðar hafa verið við La
Salpétriére í París, og eg hef áður um getið.
En til þess útheimtist, að sá sem læknar, hafi
sterka hugsun og sterkan vilja, enda þarf hann
21