Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Síða 20

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Síða 20
164 NYJAR KVÖLDVÖKUR. Hefði nú þýzka þjóðin staðið utan við menn- ingarstraumana, þá ætti hún nú ráð á 60 milj. krafteininga (mannsafla); en nú á hún ráð á meira en þrefalt meira afli. Retta er ekki lítill auður. Vel getur svo farið, að rafmagnið verði búið að hertaka gufuna, eða standi henni að öllu jafnfætis að mannsaldri liðnum, og vatns- aflið verður þá að líkindum þjónn mannanna að fullu, þannig að því verður breytt í raf- magn og látið vinna í 100 — 400 km. fjarlægð. Og svo er líka þess að gæta, að þessi nýju öfl verða 5 — 20 sinnum ódýrari en manns- og dýrsaflið. En^svo margfaldast það, við það að þessi hel- jaröfl vinna með því að beita þeim á vinnuvélar. Vélarnar eru nákvæmar, vissar og vinna altaf jafnt, og spara þannig ákaflega tíma, krafta og efni. Eiffel, smiðurinn nafnkunni, sem bygði Eiffelturninn í París, reiknaði svo 1869, að ef menn ættu að láta menn bera alt það, sem flutt væri á járnbrautum, mundi til þess þurfa 1280 tnilj. manna, meginið af öllu því fólki, sem jörðina byggir. Og annað dæmi má taka. Ef engin prentlist eða prentsmiðjur væru til, þá dygði það ekki til, þó að hver einasta mann- eskja á jörðinni væri tekin, og ungbörnin með, og sett við skriftir, það vantaði mikið til að allar bækur og blöð í heiminum kæmust í verk fyrir það. Og nokkuð yfir 100 milj. manna þyrftu til þess að spinna alla þá bómull, sem spunnin er í verksmiðjunutn á Englandi einu. Vélavinnan eða vélaaflið hefur unnið einna mest hingað til að samgöngufærunum og svo að iðnaðinuni, eins og áður er sagt. Sam- göngumálefnin öll saman hafa meira að segja orðið að ríki, sjálfstæðu fyrir sig, í búnaðar- lífi bæði manna og þjóða og ríkja. Alt þetta stórkostlega net af ákveðnum skipaleiðum, járn- brautum og fréttaþráðum ræður lögutn og lof- um um löndin, og sumstaðar hafa þau tekið okurböndum á þjóðunum. Innan iðnaðarins eru það einkum spunaverksmiðjur og vefnaðar, námuverknaður, málmsteypa og mótun, og svo Yérksmiðjur þær er vinna að ieður- og tré- vinnu, með öðrum orðum: allar greinir stór- iðnarins, sem vélar eru mest notaðar við. Minni áhrif hafa þær að sínu leyti haft á landbúnað og jarðyrkju, þótt mikil séu. Engin takmörk verða setl fyrir því, hvað langt iðnaðargreinarnar geta gengið —hvað víð- tækar þSer geta orðið. Pær geta aukizt jafiit og þétt, meðan dugur og stofnfé er til að reka þær og afurðirnar seljast. Pað er líka altaf of- an á sú stefna, að minsta kosti enn, að auka atvinnurekstur með verksmiðjum. Pað eru hvergi neinar lagahömlur lagðar á það, hverja tegund iðnaðar menn vilja reka með verksmiðjum. Pað liggur alt að fullu í valdi þess, er verksmiðju- iðnaðinn rekur. Hann getur umtalslaust látið gera hvaða vinnu sem hann vill innan stofn- unar sinnar. Nú eru víða verksmiðjur, þar sem margar iðnaðargreinir eru reknar samhliða, en áður voru þær reknar alveg sín í hverju lagi. í greinum þeim, sem á eftir koma, verður lýst nokkru af hinu helzta í sögu stóriðnaðar- ins nú á dögum. /•/• Bókmentir. Eitthvað hefur verið fyrirfarandi gefið út hér á landi af útleggingum úr öðrum málum, en hvað það er, er Kvv. ekki kunnugt, því að ekki hafa þeim borist í hendur nema tvær bæk- ur, útlendar að uppruna, en útlagðar á íslenzku. Báðar þær bækur hefur útlagt Bjarni Jónsson alþingismaður frá Vogi. Önnur þeirra heitir Ingvi-Hrafn og er eftir hið nafnkunna þýzka skáld Gusiav Freytag. Saga þessi er önnur í röðinni í sagnabálki þeim hinum mikla, er hann samdi og kallaði »Die Ahnen® eða ættbálkurinn, og er eitt af þeim ritum, sem hefur náð mestri útbreiðslu og hylli meðal Pjóðvérja næst Ekkehard Scheffels. Fyrsta sagan í bálki þessum kom út fyrir nokkrum ár- um í þýðingu eftir hinn sama, Ingvi konungur, og var henni vel tekið. Nú kemur önnur sag-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.