Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Page 24

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1914, Page 24
168 NYJAR KV0LDVÖKUR. Fischer: »Nu-ú, svo, það var hún. Eg vil ekki vera ónærgætinn, en það segi eg satt, að ef eg ætti engil sem, væri eins stórbeinóttur og hnútóttur, eins og afgamall áburðarjálkur, mundi eg senda hann til annars heims, ef hann vildi ekki fara sjálfviljugur.« Grant: »f*að er betra að vera stórbeinótt- ur, en hafa eins eldrautt nef og frú Fischer hafði. Það brennir áreiðanlega gat á kistulok- ið, vertu viss. Hæ, þú læzt syrgja, það er Iag- leg uppgerð; eg veit þú ert svo ofsakátur, að þig langar til að æpa gleðióp.» Fischer: »Þú skalt svei mér fá á baukinn, ef þú talar hæðilega og niðrandi um konuna mína.« Grant: íÞað þættí mér gaman að sjá.« Ekkjumönnunum hefði efalaust lent saman í áflogum, ef líkfylgdirnar hefðu ekki gengið á milli. Vinir Grants stungu honum inn í vagn, sem þegar rann á stað með hann, og Potts lækni heppnaðist að koma Fischer inn í annan vagn og ók tafarlaust burt. Á Ieiðinni gaf Fisch- er sorg sinni lausan tauminn. »Læknir góður,« sagði hann. »Eghefenga konu þekt jafnnýtna og hún var. Eg hef séð konuna mína sálugu taka brækur af mér og klippa þær í sundur í föt handa drengjunum. Hún saumaði ágætan fatnað handa þeim báðum úr þessari gömlu brók. Og hún hafði meira að segja nægan afgang í loðkápu handa litlu stúlkunni og í húfu handa Jonny; vasaklúta bjó hún til úr vösunum og þó hafði hiín enn af- gang. Væri henni gefin gömul flík, varð hún í hennar höndum hreinasta gullnáma. Mér er næst að halda, að hún hefði getað búið til spánnýjan yfirfrakka úr gömlum sokk. Gamla skyrtu, sem eg var búin að leggja niður, not- aði hún í mörg ár fyrir gluggatjald, og til margs annars. Hún bjó til hnappa handa okk- ur öllum úr svínslærsbeinum, og fimtán hænsa- búr bjó hún til úr gamalli pilsaglennu. Hún fékk ágæta fiðurdýnu úr fiðrinu af Iítilli akur- hænu. Bezta svínamat bjó hún til úr hefilspón- um, já, og svínin spikfitnuðu. Já, það var ekk- ert smáræði, sem hún gat búið til úr lítilfjör- legu efni. Eg held hún hefði getaó bygt fjór- Iyft gistihús úr einum furubulungi, eða gufu- skip úr þvottakatli. Nei, hennar líka finn eg aldrei.« Pegar hinir sorgmæddu ekkjumenn komu heim til sín, batt herra Grant sorgarslæðu um alla gluggakróka, til þéss að sýna hve mjög hann syrgði, en herra Fische sem fann glögt, að hans sorg var þyngri en sorg Grants, skreytti ekki aðeins alla sína gluggakróka, en hengdi líka fimm álria slæðu á dyrabjölluna, og lét alla heimilismenn sína skrýðast sorgarbúningi. Grant áleit það skyldu sína gagnvart kon- unni sinni sálugu, að láta ekki undan Fischer, og vatt því upp svartan fána og lét sverta fram- hliðina á húsinu sínu. Petta þótti Fischer úr hófi keyra, og hann þóttist ekki geta sýnt sorg sína á annan hátt átakanlegar en með því að mála húsið sitt svart og reisa konunni sinni minnisvarða. Grant sverti þá bleika hestinn sinn í lampa- sódi, batt sorgarslæðu um hornin á kúnni sinni og festi laglegan slæðuskúf við halann á henni, dýfði hundinum sínum ofan í blek og tók að fága á sér nefið með svörtum vasaklút. Þessi göfugi kappleikur stóð yfir nær því eitt ár, og er ekki gott að segja hversu hon- um hefði lyktað, ef Fischer hefði ekki í hjarta sínu uppgötvað alt í einu innilegan hugþokka á ungfrú Lang, er hann hafði hitt nokkrum sinnum hjá kunningja sínum. Fischer reyndi að koma sér í mjúkinn hjá henni, og fór smám saman að fjarlægja öll hin ytri sorgarmerki. Pess var auðvitað ekki langt að bíða, að Fischer kvongaðist aftur, og er Grant frétti það, gerðist hann svo styggur við, að hann labbaði þegar á stað og bað ekkjufrú Jones. Hann fékk jáyrði hennar og gifti sig stuttu á eftir Fischer. Já, svona eru karlmennirnir. M. B. þýddi.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.