Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 4

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 4
146 NÝJAR KVÖLDVÖKUR mikill.... Þannig ski’ifar enginn nema sá, sem hefir stórskálda-hæfileika. .... Guðmundur Daníelsson hefir sýnt með þessari bók, að hann kann að byggja skáldsögur og tefla fram mörgum persón- um á breiðu leiksviði, þannig að þær standi lesanda skýrt fyrir sjónum. Hann stendur nú mjög framarlega í sveit ís- lenzkra rithöfunda og er líklegur til mik- illa afreka í framtíðinni, Jón Magnússorí‘ (skáld). Skírnir 1940. „Þetta er fjórða saga Guðmundar Daní- elssonar. Mér finnst það enginn vafi, að með henni hafi hann skipað sér á bekk með beztu sagnaskáldum þjóðarinnar. Jón H. Gu3mundss.“ (,,Vikan“ 15. ág. ’40). hér hefir ungur höfundur skrifað skáldsögu, sem tekur langt fram þeim þrem sögum, sem áður hafa komið út eft- ir hann, skáldsögu, sem er vert að kynn- ast og lesin mun verða með eftirvæntingu og vaxandi áhuga. .. . “ Eimreiðin, 3. h. 1940. „. .. .Guðmundur Daníelsson er vaxandi skáld í sinni nýju skáldsögu. Hann hefir stigið upp og stigið fram. Fyrst og fremst með því, að söguefnið mótast af göfugu markmiði og þar næst á meðferð máls og stíls“. Vesturland, 31. ágúst 1940. .... Það leynir sér ekki að höfundur þessarar sögu er sér þess meðvitandi, að hann á erindi fram á ritvöllinn. Magnað- ur af kölluninni til þess starfs, tekur hann sér stærra viðfangsefni en áður og stækk- ar að sama skapi í list og leikni, því stór- brotnara sem verkefnið er. Slíku æfintýri á skáldabekk okkar fámennu þjóðar ber að fagna“. Alþýðumaðurinn, 22. okt. 1940. „. .. .En hún (þ. e. sagan) verkar á les- andann eins og hún væri sönn, og í því er fólginn hennar mesti kyngikraftur. Sögu- persónurnar verða lesandanum ljósar og lifandi og undur náttúrlegar“.... Nýtt land, 30. ágúst 1940. ,,....Manni gæti því orðið að spyrja, hvort sú marghliða stílleikni, sem Guð- mundur Daníelsson ræður yfir, séu nátt- úruleikni með öllu, eða að nokkru leyti þjálfuð. Þar til er eindregið því að svara, að hér er um ómengaðar náttúrugáfur að ræða.... Það er ef til vill þessi stílleikni, sem manni finnst vera sterkasta loforð af hálfu höíundar um að verða ótvírætt skáld í fremstu röð, þó að vísu margt annað bendi til þess. .... Það er í raun og veru svo, að hver einasta persóna bókarinnar stendur svo bráðlifandi, að það er fyrirhafnarlaust að átta sig á hverri um sig — maður skilur þær strax. .... Maður leggur því bókina frá sér á- nægður yfir að hafa verið að lesa góða og skemmtilega bók — góðar bókmenntir.... Guðbr. Jónsson“ (prófessor). Vísir, 7. ágúst 1940. .... Sagan er enginn áróður fyrir neinn ákveðinn „isma“, og er því laus við að elta tízkuna.... Hann stendur ekki undir á- hrifavaldi sérstakra þjóðfélagsstefna, sem lita blek hans, er það snertir pappírinn. Þetta er styrkur hans. Og hinn litríki stíll hans og persónulega, óháða frásagnarlist skipa honum með bók þessari mjög fram- arlega á bekk núlifandi íslenzkra skáld- sagnahöfunda“. íslendingur, 13. sept. 1940. „. .. .Allar persónur sögunnar verða les- endum hennar ógleymanlegar, svo skýrt eru þær mótaðar í skaplyndi og háttum. Það er eins og maður hafi haft raunveru-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.