Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 5
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 147 leg kynni af þeim í lífinu, líkt og séra Sigvalda í „Manni og konu“, eða Bárði á Búrfelli og Gróu gömlu í „Pilti og stúlku“. Og er þetta einmitt óbrigðulasta einkenni á góðum skáldsögum11. Dagur, 26. sept. 1940. „....,Á bökkum Bolafljóts' er bezta skáldsaga Guðmundar. .. . Sigurður Guðmundsson“. Þjóðviljinn, 28. ágúst 1940. „... .Hin nýjasta bók Guðmundar Daní- elssonar er gegnsýrð af hæfileika höfund- arins til þess að njóta þess, sem hann sér, heyrir eða skynjar á annan hátt, njóta fjölbreytninnar, gróðurmagnsins og bar- áttunnar milli hinna eyðandi og hinna frjóvgandi og lífgefandi afla í sálum manna og náttúrunni umhverfis, njóta þess sem styrkjandi, örfandi og svalandi drykkjar Og hver sá, sem les bókina og er ekki að eðli eitthvert ónáttúruhimpi — eða hefir gert sig eða látið gera sig að slíkri vanmetaskepnu — hlýtur að hrífast með og njóta um leið og hann les. .. . Um hæfileika hans til að spinna söguþráð, verður ekki efazt. Hann hefir til að bera mikla mannþekkingu. Hann á frumstæðan þrótt — og yfir honum er blær hressandi heilbrigði. Hann er orðfrjór og kjarnyrt- ur. .. . má vænta af honum glæsilegri af- reka í bókmenntum en flestum öðrum ís- lenzkum höfundum“. Guðmundur Hagalín. Lesbók Morgunblaðsins. 13. okt. 1940. „. .. . Eg er ekki í vafa um að Guð- mundur getur orðið stórskáld. Hann á gáfuna, dugnaðinn og viljann.... Sagan er skemmtileg lestrar og líkleg til að verða mjög vinsæl. Hún er prýðis- vel byggð og efnisvalið víða ágætt. Allt bendir á mikið hugmyndaflug, frásagnar- gleði og vilja til stórræða. Og höfundur- inn er á réttri leið, honum er orðið ljóst hvað til þess þarf að skrifa góðar skáld- sögur.... skáldið er ungt og þróttmikið og fer hamförum. ...“ Kristmann Guðmundsson- Vísir. 30. okt. 1940. „... . Með sögu þessari hefir Guðmund- ur sýnt, svo að ekki verður um deilt, að jafnvel glæstustu vonir, sem til hans voru gerðar hafa rætzt.... Framfarirnar frá næstu bók á undan, Gegnum lysti- garðinn, eru svo miklar, að líkast er því, að hér sé um annan höfund að ræða, svo mjög ber hún af öllu. Það er hönd snill- ingsins/sem hér hefir um vélt. Allt virð- ist vera hnitmiðað. Atburðakeðjan eðlileg og ýkjulaus, og sagan með vaxandi stíg- anda til loka. Eg minnist þess heldur ekki að hafa lesið skemmtilegri íslenzka skáldsögu, og er margt, sem að því stuðl- ar annað en það, sem nú er nefnt. Benda má á það, að stíll höufndar er leikandi léttur, svo vafamál er, hvort aðrir íslenzk- ir rithöfundar standa honum framar á því sviði. í lýsingum gætir hispursleysis og raunhæfni. .. . Stílfegurð höfundar kemur ekki sízt fram í nátt.úrulýsingum, en þær eru margar fagrar og lausar við skrúð- mælgi og orðaprjál viðvaningsins. Það, sem gefur þó sögu þessari öllu fremur bókmenntalegt gildi eru ágætar mannlýs- ingar. Allar hinar mörgu persónur sög- unnar eru vel gerðar. Og allt eru þetta persónur, sem við þekkjum svo vel, hver annari sérstæðari, hver annari mannlegri, þótt ólíkar séu að innræti. Tök höfundar- ins eru jafn nákvæm og örugg, sálkönn- un hans jafn glöggskyggn, hvort sem hann lýsir æskunni eða ellinni, blómarósinni eða ekkjunni, einyrkjanum eða stórbónd- anum, ferjukarlinum eða heimsmanninum. Þessvegna er það, að atburðirnir verða í sjálfu sér ekkert aðalatriði í þessari sögu. Þeir skapa ekki persónurnar, en þeir eru 19*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.