Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Page 8

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Page 8
150 NÝJAR KVÖLDVÖKUR lyndum manni fyrir þá sök, að hann er fátækur. Eftir því, sem ég hefi kynnzt skoðunum séra Bjarna, tel ég að við höf- um nóg af íhaldi og þröngsýni, þó að ekki sé bætt við. Nú hafði Páll „sitt á hvað“ þagað svo lengi, að hann hélt ekki út lengur. — Neftóbakið hans séra Bjarna er hreint það bezta, sem ég hefi nokkurn tíma þefað af---------. Hann komst ekki lengra, því að með- hjálparinn rak olnbogann svo hart í síð- una á honum, að hann æjaði við — Þegi þú, Páll, sagði hann höstugur. Hér er alvarlegra mál til umræðu en nef- tóbak. Það er andleg og veraldleg velferð okkar allra, sem um er að ræða, Hún stendur og fellur með því, hver verður kosinn. En viðvíkjandi þessu, sem hann Pétur var að minnast á um íhald og þröngsýni, vil ég leyfa mér að halda því fram, að við, sem styðjum að kosningu séra Bjarna, séum ekkert verri framsókn- a'rmenn en hann. Ég leyfi mér því að vísa þessum dylgjum hans heim til föðurhús- anna. Það er ekkert íhald, þó að maður geti ekki rólegur og aðgerðalaus horft upp á það, að ábyrgðarlausir angurgapar, sem ekki vita hvað þeir vilja, troði undir íótum allt, sem manni er heilagt. Oddvitinn ræskti sig. — Þetta er alveg eins og talað, uh, út úr mínu hjarta. Það, sem ég dái mest hjá séra Bjarna, uh, sem presti, er það, hvað kenning hans er, uh, uh, í samræmi við það, sem mér var kennt, uh, sem dreng. Ég segi, að við eigum að halda okkur við barnalærdóminn. Ég kæri mig ekkert um prest, sem rífur niður, uh, það sem mér hefir verið kennt. Þetta rugl, uh, um að það sé allt lygi, sem stendur í biblíusög- unum er, uh, uh, bara til ills, — bara til ills, segi ég. Það leiðir bara, uh, til þess að enginn veit, hverju má trúa. — Við eigum að leita sannleikans í trú- arbrögðunum sem öðru; biblían er síður en svo óskeikul. Það er margsannað, að meginið af henni er skáldskapur. Prest- arnir eiga að vera forystumenn okkar, leiðbeinendur í leitinni að sannleikanum, en með allri virðingu fyrir séra Bjarna, tel ég hann ekki hæfan til þess, sagði Pét- ur í Brekku. — Ég held maður viti svo sem, að þú og þínir líkar vilja helzt enga trú, anzaði meðhjálparinn fyrirlitlega. Samræðurnar urðu ekki lengri, því að séra Bjarni kom á vettvang. Þurfti hann að tala við vin sinn, meðhjálparann. Hóp- urinn dreifðist. Sumir áttu eftir að kjósa og sneru sér nú að því. Aðrir fóru að hugsa til heimferðar. — Við vinnum, prestur minn, sagði meðhjálparinn, þegar þeir voru orðnir tveir einir, eins og kosningin gilti hann ekki síður en prestinn. — Það má ég sjálfsagt þakka yður, Jó- hannes minn. Þér hafið unnið fyrir mig af mikilli trúmennsku. — Nefnið þér það ekki. Það var mér ljúft og skylt. —• Hefir Guttormur ekki komið? — Nei, ónei. Það sagði einhver, að hann mundi ekki koma, og enginn þaðan. Þér megið vera feginn prestur minn. Það verður þá þeim atkvæðunum færra á móti yður. Séra Bjarni fékk sér í nefið. — Ég hefi heyrt, að það hafi ekki verið hann, sem bar fram þessa tillögu á fund- inum. Það hefir víst eitthvað skolazt í Páli, Mér hefir verið sagt, að hann hafi einmitt viljað vera hlutlaus. — Það fer nú misjöfnum sögum um það, prestur minn. En ég þekki Guttorm. Það var náttúrlega þægilegra fyrir hann að fá annan til að bera hana fram, en það þarf enginn að segja mér, að Gutt- ormur hafi ekki lagt ráðin á. — Ekki er hann nú einlægur Jónasar-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.