Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Page 19

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Page 19
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 161 íslenzkt, og ber eigi minnst að þakka það á þeim breytinga- og byltingatímum, sem nú eru. Það má vel vera, að skoðanir manna um Sólon Islandus verði skiptar, en við- tökur þær, sem bókin hefir þegar fengið, sýna bezt, að hún hefir fallið þorra les- enda í geð. Hitt er og víst, að Davíð hefir þegar með þessari fyrstu skáldsögu sinni tekið sér sess meðaL hinna fremstu ís- lenzku sagnaskálda. Karen M. Nielsen: Jólagjöfin. Hans Sjönning var hvorki laglegur eða glæsilegur maður, þar sem hann stóð fyr- ir innan búðarborðið í ölkjallaranum sín- um. Það bætti heldur ekki úr, að hann var frekar illa til fara, venjulega bæði með ógreitt hár og skegg. En þrátt fyrir þetta, bauð maðurinn af sér góðan þokka. Það var eitthvað góðlegt við gráu augun hans, sem stundum voru dálítið þung- lyndisleg. Hann hafði verið í Ameríku og grætt þar stórfé, það vissi hvert mannsbarn í götunni. Og menn vissu það líka, að hann kærði sig ekkert um, hvað aðrir töluðu og hugsuðu um hann, en eitt var víst, verzl- un hans gekk vel, og hann hafði' marga góða viðskiptavini. Hans Sjönning hafði verið 20 ár í Ame- ríku. Hann var tvítugur þegar hann fór þangað vestur, og öll þessi löngu ár, í fjarlægri heimsálfu, hafði hann unnið baki brotnu. Hann safnaði líka fé, reikn- aði og taldi saman, hvað hann væri nú búinn að græða. En loksins, eftir öll þessi ar, varð heimþráin svo sterk, að hann lagði af stað heim til átthaganna. Þegar þangað kom var móðir hans búin að hvíla tvÖ ár í kirkjugarðinum við hliðina á litlu systur hans, Línu, sem var dáin áður en hann fór vestur. En hinir fáu og fátæk- legu munir, sem móðir hans hafði átt, voru komnir eitthvað út í veður og vind. Þreyttur á líkama og sál, eftir 20 ára þrældóm í fjarlægri heimsálfu, kom hann nú hemi til átthaganna aftur, en þar fann hann enn meir til tómleikans í sál sinni, og einstæðingsskaparins, en nokkru sinni áður. Hann keypti* tvo fallega kransa, lagði þá á hin tvö leiði úti í kirkjugarðin- um, kvaddi síðan fæðingarþorp sitt og hélt til höfuðstaðarins. Eftir stutta dvöl þar keypti hann ölkjallara í fjölfarinni götu, og allt gekk vel. Þótt hann væri auðugur maður, hafði hann alltaf neitað sér um hvíld og lífs- þægindi, öll þessi ár, sem hann var í Ame- ríku, og þannig varð það einnig hér. Á bak við búðina hans var lítið og óvistlegt herbergi. Þarna kom hann nú rúmi sínu fyrir, ásamt litlu borði, stól og olíuofni, sem hann notaði stundum til að steikja sér fleskbita á, eða hita kaffisopa, sem vildi nú verða misjafnt að gæðum. Þessu óbrotna lífi hélt hann áfram að lifa. Þegar hann var svo búinn að loka búð- inni á kvöldin, gerði hann upp reikninga 21

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.