Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Blaðsíða 24
166 NÝJAR KVÖLDVÖKUR og erum því innilega þakklátar þegar ein- hver gerir okkur þá ánægju að líta hér heim. Og nú skulum við reyna að gera þetta kvöld ánægjulegt. Fyrst plokkum við niður af jólatrénu það, sem þar er að fá, þar næst syngjum við jólasálm, og drekkum svo kaffi síðar. Ég óska yður hjartanlega gleðilegra jóla, herra Sjön- ning!“ sagði hún að lokum, og rétti hon- um höndina. Ester tók einnig í hönd hans, og óskaði honum gleðilegra jóla. Að því búnu kom hún hinu dýrmæta kaffistelli fyrir á borðinu, og festi svo litlu hörpuna í kjólbarminn, svo neðarlega, að hún gæti séð hana sjálf. Ætlar þú ekki að láta á þig fingurbjörg- ina líka?“ spurði móðir hennar hlæjandi. „Nei, en nú ætla ég að taka niður af jólatrénu, áður en kertin eru útbrunnin", sagði Ester glaðlega. Svo voru smábögglarnir teknir niður af trénu, og úthlutað. Sjönning varð að láta sér nægja lítið eitt af sætabrauði, en var samt hjartanlega ánægður. Að því loknu settist Ester við orgelið. „Þú spilar auðvitað gamla, fallega sálm- inn okkar, Ester mín“, sagði móðir henn- ar. „Já, mamma“. Svo sungu þau sálminn: „Ofan af himn- um boðskap ber“. Ester söng með hreinni, fallegri rödd, og frúin tók undir, en Sjönning sat lengra frá og fól andlitið ósjálfrátt í höndum sér. Það var einkenni- legt, að þessar konur skyldu alltaf hitta á að syngja þá söngva, sem minntu hann svo mjög á bernskuheimili hans. Þetta var einmitt jólasálmurinn, sem mömmu hans þótti vænzt um. Hann mundi enga þá jólanótt heima, að þessi sálmur væri ekki sunginn. Hann sá í anda blessaða litlu stofuna þeirra. Hann sá móður sína, systur og sjálfan sig við jólaborðið með sálmabækurnar sínar. Og á meðan þær mæðgur héldu áfram að syngja sálminn, gat hann ekki lengur tára bundizt. Hægt og hljótt runnu þau niður kinnar hans og skegg, og hrundu svo nið- ur á kné hans eins og tærar perlur. Skyldu þær sjá þetta? Æ, hvað gerði það til, þær mundu ekki gera gys að tilfinn- ingum hans. Enn voru sungnir nokkrir sálmar. Svo stóð Ester upp og fór að leggja á kaffi- borðið. Eftir litla stund var allt tilbúið. Á miðju borðinu stóð silfurstellið, en log- andi kertaljós á litlum grenigreinum stóð við hvern kaffibolla. „Nú hellir þú í bollana, mamma mín“. Þegar Sjönning stóð loks upp til að kveðja, gekk ungfrú Ester til hans og mælti: „Þér megið ekki reiðast mér, herra Sjönning, en það er dálítið, sem mig lang- ar svo mikið til að biðja yður um“. „Og hvað er það, ungfrú?“ „Það er — það er múrarafjölskyldan ennþá. Ég get fullvissað yður um, að þar eru ekki haldin gleðileg jól. Ég býst ekki við að múrarinn sé vondur maður, en hann er svo algjörlega á valdi flöskunnar, að hennar vegna gleymir hann öllum sfn- um skyldum. Við mamma höfum reynt að gera það sem við gátum til að bæta úr sárustu neyðinni, en við getum svo lítið, en þér, Sjönning, eruð auðugur maður. Þætti yður ekki gaman, að ganga upp og gleðja hina bágstöddu konu með einhverri lítilsháttar jólagjöf?“ „Ester! hvernig dettur þér þetta í hug?“ sagði gamla frúin og horfði hálf hrædd á dóttur sína, yfir gleraug’un. Sjönning stóð alveg ráðalaus: „Ég þekki þetta fólk alls ekkert, og það væri dálítið einkennilegt að koma þannig vaðandi inn til þeirra á sjálfa jólanóttina'V „Ég skal koma með yður, og það verður að haga því þannig til, ef þér gefið frú Hansen eitthvað, að maður hennar fái ekki að vita það, því annars væri hann

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.