Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Side 30

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1940, Side 30
172 NÝJAR KVÖLDVÖKUR breytt hölðu ást hans í hatur. Hún hafði aldrei raulað lag þetta, nema þegar hún var einsömul og hélt, að enginn heyrði til sín. Höfðinginn tautaði eitthvað í hljóði, reif tjaldflíkina alveg frá dyrunum og þaut inn í tjaldið. Á lágu skrautborði stóð kaffikanna og hylki með vindlingum í, og þar rétt hjá sat söngkonan litla mitt í stórri svæfla- hrúgu. Hún laut höfði niður yfir gítarinn, sem lá á kné hennar, og ruggaði sér hægt eftir hljóðfalli söngsins. Þótt hún væri með allan hugann við óljósar bernsku- minningar, er tengdar voru söng þessum, voru þó eyru hennar næm fyrir öllum hljóðbrigðum næturinnar. Hún heyrði því óðar, er hinn þungi búrnus (skikkja) höfðingjans slóst við reiðstígvél hans, lét gítarinn renna niður með kné sér og leit upp með eftirvæntingu — en glöð kveðju- orðin visnuðu á vörum hennar. Hún spratt á fætur, þrýsti höndunum upp að brjósti sér og dró djúpt andann og starði hrædd og forviða á mennina tvo á víxl. Þeir voru báðir svo kuldalega hörkulegir á svip, svo einkennilega furðulíkir og þó svo ólíkir að yfirbragði. Allt í einu áttaðl hún sig, rak upp lágt hljóð og flýði inn í innra tjaldið. „Who is that girl?“ (Hvaða stúlka er þetta?) Það var í fyrsta sinni á ævinni, að höfðinginn ávarpaði son sinn á ensku. Ahmed ungi fölnaði og hörfaði undan bræðiþrungnu augnaráði föður síns. Hann hikaði með svarið, en sagði svo: „Það er stúlkan, sem — ég hefi tekið“, svaraði hann og kerrti allt í einu hnakk- ann þrákelknislega. Augu höfðingjans leiftruðu geigvæn- lega. „Þú — hefir tekið!“ endurtók hann hvasst. „Og það geturðu sagt svona kæru- leysislega?“ Og svo hellti hann sannköll- uðu syndaflóði af svíðandi sárum bitur- yrðum yfir höfuð sonar síns, er stóð frammi fyrir honum, þögull og náfölur, og beið þess, að heljarhríð þessari skyldi létta. Er höfðinginn þagnaði að lokum, leit sonurinn framan í föður sinn með einkennilegu augnaráði. „Þú hefir formælt mér fyrir það, sem ég hefi gert“, sagði hann skjálfraddaður i hálfum hljóðum, „en hvernig tókst þú „mömmu litlu“?“ Höfðinginn hrökk við, eins og hann hefði verið barinn með svipu, og náföln- aði. „Veizt þú — það?“ sagði hann loks- ins, og var auðséð, að hann tók þetta nærri sér. Og „drengurinn“ sá nú, að hefnd hans hafði orðið sárari og áhrifa- meiri, en hann hafði búizt við. „Eg hefi vitað það, síðan ég var ofurlít- ill angi“, svaraði hann lágmæltur, „og það lá við, að Gaston dræpi manninn, sem sagði mér það“. Höfðinginn svaraði þessu engu. Hann gekk út í tjalddyrnar og starði út í myrkrið, og tilfinningar hans voru í upp- námi. Blygðun og sársauki skáru sem bitrir hnífar í sálu hans. Þetta var hans eigin synd endurvakinl Endurminningin um eigin afbrot mætti honum hér í mynd lastatilhneigingu hans sjálfs. Hvernig ætti hann þá að geta dæmt, hann, sem framið hafði sömu synd- ina? — Þetta var miklu frekar hans eigin sök en „drengsins“, því að þetta var arf- ur hans. Arfur! Og hafði hann ekki ver- ið of skeytingarlaus um allt uppeldi „drengsins“, þótt hann hefði auðvitað að- varað hann þrásinnis. — Og hér komu nú afleiðingarnar í Ijós — þessi augljósu mök við þarlenda stúlku! Hann andvarpaði þungt og gekk yfir að legubekknum og benti „drengnum“ að koma nær. „Úr því að þú veizt þetta“, sagði hann og var þungt niðri fyrir, „verður auðveldara fyrir okkur að tala rækilega og opinskátt um þetta. Þú hefir þóttst hafa fullan rétt til að minna mig á,

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.