Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Page 24

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Page 24
62 BENSI BARNFÓSTRA N. Kv. brúðutetrið, sem gat sagt mamma, skemmd- ist ekki svo, að það missti málið, því að þá hefði hann sannarlega ekki sloppið við að fá einn vel útilátinn á kyssandann. Við yfirgefum bílinn góðan spöl frá ákvörðunarstaðnum, og göngum síðasta spottann af leiðinni, tveir og tveir saman. Ég geng við bliðina á Stóra-Bensa og ber böggulinn, sem hann trúði mér fyrir, en hann draslast sjálfur með króann innpakk- aðann í teppi, verkfæratöskuna og flata böggulinn, sem líkist biblíu. Á þessum tíma sólarhringsins er svo kyrrlátt í Átjánda stræti að hver óg einn getur hæglega heyrt sjálfan sig hugsa. Og sannarlega heyri ég Iíka sjálfan mig hugsa um hvaða erki aula- bjálfi ég sé að vera að flækjast hér í þessum erindum og félagsskap, þar sem krakka- skinn er haft með í förinni, en áfram held ég þó, og sýnir það be/.t hvað ósjálfstæður garmur ég er. Það eru harla fáir á ferli í Átjánda stræti þegar við heiðrunr það með komu okkar. Einn þeirra næturlrrafna er feitur kúlu- vambi, sem styður vegginn nálægt miðri sambyggingunni, en gengur strax afsíðis þegar við komum. Sá mörpoki virðist vera varðmaðurinn hjá kolafélaginu og auk þess góðvinur Efana Hrossa, og er það síðara ástæðan til þess að hann hypjar sig burtu þegar hann sér til ferða okkar. Áður en við förurn að heiman frá Stóra- Bensa, hefur Jrað orðið að samkomulagi, að Harri Hrossi og Spánski-Jón skuli halda vörð úti fyrir húsinu á meðan Bensi gerir uppskurðinn á skápskrokknum, en að Litli-Dóri skuli fylgja honum eftir inni í húsinu. Ekkert hefur verið ákveðið um stöðu mína í samfélaginu, og raunar sé ég að minnstu máli skipti hver hún er, vegna Jress að ég er ekkert annað en utanveltu- gemlingur, en af Jrví að Bensi hefur falið mér að bera böggulinn geri ég ráð fyrir að hann ætlist til þess að ég doki við hjá hon- um innan dyra. Við sleppum inn í skrifstofuna eins og fingur í þumal. Skrifstofan er á neðstu hæð og ekki verður annað séð en að vörðurinn hafi verið svo hugulsamur að skilja við dyrnar opnar. Vörðurinn er meira að segja svo greiðvikinn að koma röltandi til okkar svo að Harri Hrossi og Spánski-Jón geta krossbundið bann í stökustu rólegheitum, og troðið klútrýju upp í hann og lagt hann til hliðar úti fyrir skrifstofudyrunum, svo að engri sálu geti dottið í hug að hann hafi verið nokkur hluthafi í því að opna skáp- hólkinn, ef einhvern tíma yrði um Jrað spurt. Skrifstofan veit út að götunni, og skápur- inn, sem þeir Harri Hrossi, Litli-Dóri og Spánski-Jón, vilja láta Stóra-Bensa opna. stendur við bakvegginn og snýr andlitinu út að glugganum. Lítið rafljós logar dauf- lega yfir skápnum, svo að í hvert sinn sem vörðurinn gengur fram hjá getur hann séð að skápurinn er ekki strokinn, ef hann er ekki alveg stauraður. Þetta er hvorki hár né digur skápur, og ég sé Stóra-Bensa brosa svo að endajaxlarnir í honum korna nærri Jrví út á hlaðið, þegar hann sjónar gripinn. Eg kenrst því að þeirri niðurstöðu að Jressi öryggisskápur hjá kolafélaginu sé kannske ekkert öruggur, rétt eins og Harri Hrossi liélt fram við Bensa. Jafnskjótt og Stóri-Bensi með króann og við Litli-Dóri erum komnir inn í skrifstof- una og búnir að ná áttunum, gengur Bensi að skápnum og flettir sundur bögglinum, sem leit út eins og biblía ,og hvað skyldi þá koma í Ijós annað en stór hlíf eða skermur, sem er máluð á framhliðinni eins og andlit á peningaskáp. Stóri-Bensi reisir Jjessa hlíf á glófinu fyrir framan hinn raunverulega skáp, og ætlar sér hæfilegt athafnapláss á bak við. Hlífin á auðsjáanlega að hylja Bensa sjónunr Jreirra, sem um götuna fara meðan lrann gerir uppskurðinn á skápnum, vegna þess að lrver og einn, sem er að grufla í innýflum peningaskáps undir svona kring-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.