Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Blaðsíða 28

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1945, Blaðsíða 28
66 BENSI BARNFÓSTRA N. Kv. Ég man, að ég hugsaði sem svo, að æfisaga mín væri þó tæplega eins flekkótt og Bensa svo að ég mundi ekki fá lífstíðarráðningu í Sing Sing eins og hann. Ég man líka, að ég braut heilann töluvert um það hvað þeir mundu láta Jón Ingnatius junior hafa fyrir þátttökuna, en hann heldur stöðugt áfram að reka upp öskurrokur. Stóri-Bensi segir: „Sona, svo-nna, babbi er hjá honum.“ „Við ættum að krækja í þessa pinna. Þeir geta verið hluthafar," segir annar pólinn við feita foringjann. Ég geng að því vísu, að nú sé komið að kveðjustundinni fyrir mér, Stóra-Bensa og Jón junior, þegar sá feiti gengur til okkar. En í stað þess að taka Bensa fastan, bendir feiti foringinn aðeins á Jón Ingnatius og spyr með hluttekningu: „Tennur?" „Nei,“ segir Stóri-Bensi. „Ekki tanntaka. Innantökur. Ég var rétt núna að rífa doksa upp úr rúminu til þess að gera eitthvað fyr- ir hann, og nú erum við að fara í lyfjabúð- ina til þess að ná í meðöl handa honum.“ Ég verð náttúrlega nrjög undrandi yfir þessari yfirlýsingu, en ég er að vísu enginn læknir, og ef Jónki hefur kveisu, finnst mér að honum sé það skítnrátulegt. Ég óska bara umfram allt, að ég verði ekki spurður um lrvað ég hafi mikinn hita, þegar feiti foring- inn mælir.“ „Slæmt, mikið slæmt. Ég þekki þetta. Ég á þrjú heima,“ segir hann. „En mér finnst þetta líkara tanntöku heldur en kveisu." Þegar við Stóri-Bensi og Jón junior höld- um leiðar okkar, heyri ég feita lögreglufor- ingjann segja fyrirlitlega við pólann: „Jú, auðvitað liggur í augum uppi, að menn fara að heiman með barn á hand- leggnum í þeim erindum að opna peninga- skápa. Þú verður áreiðanlega sniðugur lög- reglunjósnari!" Nú líða nokkrir dagar án þess að ég sjái Bensa eða heyri nokkuð af honum, en ég lreyri að þeir Elarri Hrossi, Spánski-Jón og Litli-Dóri hafi sloppið heilu og höldnu yfir til Brooklyn, að undanteknum nokkrum smá skeinum eftir blýið, sem löggarnir voru að senda á eftir þeim, og ennfremur að pól- arnir, sem féllu á götuna, hafi ekki skemmst neitt tiltakanlega. Og hefði ég mátt ráða mundi áreiðanlega hafa liðið bæði ár og dagur þangað til ég sæi Stóra-Bensa, en kvöld nokkurt lítur fírinn inn til mín allur glampandi og skínandi af ánægju. „Sjáðu bara til,“ segir Stóri-Bensi við mig. „Eins og þú veizt hef ég aldrei haft mikið álit á pólunum, en nú verð ég þó að viður- kenna, að feiti lögregluforinginn, sem við rákumst á kvöldið góða, er býsna fjári snið- uður fugl. Það var rétt sem hann sagði. Það var tanntaka, sem gekk að Jóni litla, því hvað skeður? Kemur hann ekki með fyrstu gemluna í gærdag.“ Þý-tt af X. HAUST. Kom þú hjartkæra haust meður minninga fjöld, sláðu strengi, er óma við blítt, þó að fölni hvert strá og þó að blikni hvert blað, er í brjóstinu gleym mér ei nýtt. Þó að líði hver stund, lífið streymi’ áfram hratt, ljós ei myrkvast sú draumsýnin hrein, allt er geymt, ekkert gleymt, bak við tímanna tjöld situr tárfögur minningin ein. K. M. J. Björnson. VOR. Við unnum hinni friðsælu, frónsku gróðrartíð með fuglasöng og lækjarnið og smaragðsgræna hlíð, er ekki’ eins og lífið sjálft, þess ást og afl og þor, okkur til sín kalli’ í þessu stutta orði: vor? K. M. J. Bjömson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.