Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Qupperneq 6

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Qupperneq 6
90 UM SUMARDAG N.Kv. degi, að ég fæ svona traustsyfirlýsingu frá Marsibil. Já, þú segir nokkuð, Marsibil mín. Þú segir nokkuð. Já, hví ætli eg geti ekki lært á bíl eins og hver annar. Já, það segi ég nú bara. Þetta eru svo sem ekki allt neinir merkismenn, eða séní, sem aka hérna um göturnar. Eg er viss um, að í þeim hópi eru margir alveg eins heimskir og þú. Mér líkar ekki allskostar þessi talsmáli en læt þó ekki á neinu bera. — Eg skil ekki í öðru, en eg mundi sóma mér við stýri, rétt eins og hver annar, og þetta getur ekki verið sá óskapa vandi að aka bíl, segi ég. — Eg gæti nú líka aðstoðað þig, segir Marsibil, dálítið hugsandi og íbyggin. — Þú? Gætir þú aðstoðað mig? Þú? Kannt þú kanski að aka bíl? — Nei, ekki kannski beinlínis að aka bíl. En eg gæti haft auga með umferðinni og minnt þig á beygjur og hættumerki. — Jæja, kannski það. En eg hef nú alltaf heyrt, að bezt væri að hafa ekki fleiri en einn formann á hverri skútu. Ef ég er ekki maður til að fara með bíl, einn og hjálparlaust, þá er réttast að eg hugsi ekk- ert um þá hluti, þú getur þá lært sjálf og stjórnað eins og þér sýnist. — Nei — þú lærir. Það er ákveðið mál. Eg held, að það verði réttast, að ég láti þig byrja strax í dag. Hann Sigmundur í Bótinni gæti kennt þér. Þið eruð nú alltaf svo samrýmdir, og hann er víst ekki svo afleitur bílstjóri, hvað sem annars má um hann segja. Aldrei hef ég vitað aðra eins stökkbreyt- ingu á nokkrum manni eins og þá, sem varð á honum Sigmundi vini mínum við það að vera settur yfir mig sem kennari og leið- beinandi. Þarna skiptir hann svo gjörsamlega höm- um úr ljúfum alþýðumanni, vini og jafn- ingja, í einstrengingslegan harðstjóra og hrokafullan yfirburðamann. Það er eins og hann njóti þess með næstum því illmann- legri ánægju að láta mig finna sem allra átakanlegast til yfirburða sinna á þessu sviði og auðmýkja mig og lítillækka eftir því, sem hans litla vit leyfir honum. En þetta líður hjá, og þegar hann hefur unnið það kraftaverk að koma mér stórslysalaust gegnum bílprófið og útvega mér gamlan jeppaskrjóð að auki, þá get ég ekki annað en fyrirgefið honum allt hitt. — Eg er ráðin í því, að við förum aust- ur í Vaglaskóg í bílnum núna um helgina, segir Marsibil við mig um leið og hún hall- ar sér á koddann hjá mér, föstudagskvöldið eftir að ég tók prófið. — Jæja. þú segir það. En gáðu að því, að Vaðlaheiðin er ekkert barnameðfæri. Hefurðu nokkuð hugsað út í það. Held- urðu, að það væri ekki skynsamlegra að fara eitthvað sem er vandaminna. Hvernig væri til dæmis að bregða sér hérna út á Náströnd? En Marsibil hefur fengið óbilandi traust á ökumannshæfileikum mínum. — Það er skrítið, ef þú getur ekki klöngrast hérna yfir heiðina, rétt eins og hver annar. Eg anza þessu ekki. Þú skalt austur. Eg sá mitt óvænna. Jæja, þú verður lík- lega að ráða þessu. En nmndu það, að á- byrgðin hvílir á þér ef illa fer. — 0, ábyrgðin hvílir nú lield eg á bíl- stjóranum, ekki skil eg í öðru, segir hún drýgindalega.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.