Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 41

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Blaðsíða 41
N. Kv. PITCAIRN-EYJAN 125 hans. Hann stóð á fætur, þurrkaði moldina aí höndum sér og sagði aðeins: — Góðan daginn, herra. Síðan brosti hann til Young og kinkaði vingjarnlega kolli til Smith. — Hvað á að gróðursetja í dag herra Christian? — Eigið þið meira af þessum löngu brauðrótum? —- Já, það er til nóg af þeim. Eg álít að það sé bezta tegundin. — Brown fór með þá á stað, sem lá hjá skuggsælu tré. Þar óx mikið af brauðrót- um og allar af sömu tegund. Hver rót vóg að meðaltali um og yfir finnntíu pund. Meðan Christian talaði við garðyrkju- manninn fóru félagar hans út í eldhúsið og koniu aftur með tíu poka úr stórriðnu neti og þrjár burðarstengur. Pokarnir voru fyllt- ir af brauðrótum, sem voru lagðar þannig í þá, að frjóangarnir gætu ekki skemmst. Young var ekki sterkur og byrði hans varð því að vera létt. En Smith og Christian gátu hvor um sig borið hundrað pund á burðar- stöngum sínum. 1 landi, þar sem hvorki voru til vagnar né dráttardýr, voru flutn- ingar ekki mögulegir á annan hátt. Christian beygði sig niður, setti stöng- ina yfir öxl sér og stóð upp með byrði sína. Hann gekk á undan út á nýruddan akurinn, hér um bil 400 metrum fyrir vestan kofa Browns. Þessir þrír menn voru búnir að troða stíg í gegnum kjarrið. Landið hall- aðist þarna lítið eitt í suður og allt var vaxið skógi. Christan þurrkaði svitann af enni sér, þegar hann lagði byrðina af sér. Allt hafði verið undirbúið daginn áður. Young byrjaði að skera af brauðrótunum, sem margar voru mjög stórar. Smith og Christian grófu með hökum holur í sam- hliða röðum og settu plöntur og mold nið- ur í þær. Síðan jafnaði Brown moldina í kringum frjóangana. Þeir imnu af miklu kappi fram til klukk- an 10 og kepptust við að hafa á undan Young. Þeir höfðu farið úr skyrtunum, og svitinn rann niður um herðar þeirra og bak. Sólin skein beint niður á þá, þegar Christi- an fleygði verkfærunum frá sér og þurrk- aði sér í framan með berum handleggnum. — Við skulum hætta að grafa, sagði hann við Smith. — Já, herra. Eg er orðinn þreyttur. Young fylgdist með þeim að skuggsælu stóru tré, þar sem þeir helltu vatni yfir sig úr stórri ausu. Smith fór lengra inn í runnann, og kom aftur með kókóshnetur og stórt laufblað, sem þeir breiddu á jörðina í staðinn fyrir dúk. Hann tók upp hníf, sem hann bar við belti sér, skar hneturnar í sundur og bauð félögum sínum. Christian hallaði höfðinu aftur á bak og teygaði svalandi safann úr einni hnetunni. Hann brosti um leið og hann kastaði tómri hnetunni frá sér. — Þetta er dásamleg eyja, sagði hann. Safinn úr ávöxtunum er eins og bezta vín. —- Hvað skyldu stúlkurnar liafa gefið okkur í nesti í dag? spurði Young og gægð- ist niður í körfuna. Smith breiddi grænt blaðið á jörðina, og byrjaði að taka upp úr körfunni steiktan fisk, kjöt, soðnar brauðrætur, sem voru .skafnar og vafðar inn í blöð, og litla flösku af kókóssafa. Þeir settust allir niður í grasið og voru rétt byrjaðir að borða, þegar Jenny kom með stórt tréfat, sem hún setti fyrir framan þá. — Búðingur, sagði hún. Þegar hún var farin tóku þeir rösklega til matar síns. Þeir luku við fiskinn og kjötið, og búðingurinn, sem var mjög góð- ur, fór sömu leið. Þegar þetta allt var búið, stundi Smith af ánægju. — Nú væri gott að fá sér dálítinn blund, sagði hann um leið og hann stóð með erf-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.