Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Síða 12

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Síða 12
Holger Boétius: N.Kv. Lífið er byrjað Jóhann Scheving þýddi. Það blés kaldur stormur um skóginn, en þau gengu sér til hita. Visið blað kom við enni Birtu áður en það féll til jarðar. Að þessum degi liðnum myndu ekki mörg blöð eftir á trjánum, hugsaði hún. „Er eg ekki blóðrauð?“ spurði Birta unga manninn, sem gekk við hlið hennar. Hann horfði á hana og mælti: „Þú ert hressileg mjög. Þú líkist skóla- stúlku.“ Hún hló, en hláturinn var uppgerðarleg- ur. Henni skildist að ummæli hans fælu í sér gagnrýni. Og þar sem hún vissi, að þetta hefði við rök að styðjast, olli það henni gremju. Hún mælti: „Þú roðnar ekki Gregers, né verður veðurtekinn. Hafa sól og vindar engin áhrif á þig? Það er eins og andlit þitt sé gert úr leðri, eintómu leðri.“ Hann sagði eitthvað svo lágt, að það skildist ekki og tók pípu upp úr vasa sín- um. Iskaldur stormur blés um þau, og þau hröðuðu göngunni. Hann er sjálfum sér líkur, hugsaði hún. Þó að þess væri skammt að bíða, að hann útskrifaðist sem læknir, líktist hann menntaskólapilti. Utlit hans benti til að hann væri þybbinn og deilugjarn. En henni geðjaðist vel að honum. Hann var góður félagi, þó að hann væri stundum all afund- inn. Og hann var góðum gáfum gæddur. Honum fór alltaf fram. Hann vissi meira og meira í námsgrein sinni og um lífið. En hvernig er ég? spurði hún sjálfa sig. Þau gengu framhjá vatni. Á því var næfurþunn- ur ís. Hefir hann rétt að mæla, er hann segir, að ég sé alltaf eins og skólastelpa? Ef til vill. En eg hefi heldur ekki lent í neinu síðan „lífið byrjaði“. Ekki að minnsta kosti sam- anborið við menntaskólafélaga mína. Þær eru flestar komnar út í lífið eins og kallað er. Mette og Birgit eru meira að segja trú- lofaðar. Hanna er gift og á von á barni í vor. En ég? Hver einasti ungur maður, sem reynt hefir til þess að kyssa mig, hefir mér virst hlægilegur. Enginn þeirra hefir komið róti á huga minn og hjarta. Það er eins og einhver hafi staðið á milli mín og þeirra. En þessi einhver er einungis hugarburður. Gregers pjakkaði staf sínum í jörðina. Hún vaknaði af bugleiðingum sínum og brosti. Nú kemur hann með einhverja af sínum einkennilegu athugasemdum um þjóðfélagið eða eitthvað annað, hugsaði hún. En þar skjátlaðist henni. „Ég hefi erft peninga,“ sagði hann. „Það er ekki mikið fé, en nægilegt fyrir tvo að lifa á þangað til að ég fer að vinna.“ „Til hamingju“, sagði hún. „Þetta er ágætt“. „En nú er að ná í húsnæði,“ sagði hann. Hún mælti: „Ætlarðu að gifta þig?“ „Vitanlega.“ „Hverri?“ „Vertu ekki að látast vera skilnings-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.