Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Side 25

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Side 25
N. Kv. PITCAIRN-EYJAN 109 WiIIiams á leið lieim til bústaðar Mc Coy. Flestir voru gengnir til svefns, en Mary sat á gólfinu með krosslagða fætur og fléttaði mottu úr pandarusblöðum. Hún var 25 ára gömul og þjáðist ákaflega af heimþrá. Williams kallaði lágt til hennar: — Heyrðu Mary! Sefur Will? Mc Coy reis upp og gekk til dyra. — John, sagði hann, — ég var að hvíla mig. Við Matt vorum dauðþreyttir. — Komdu lit! Hafið þið séð Fasto? — Nei, livað hefur komið fyrir? •— Hún fór að ná í egg. Það var áður en ég fór í baðið, og ég hef ekki séð hana síð- an. Ég skammaði hana og sagði, að hún væri löt. Guð veit að ég.er hræddur um, að hún hafi orðið fyrir einhverju slysi. Og ég sem bar á hana að hún væri löt. Hún sem er iðjusamasta og duglegasta konan hér á eynni, þó að hún sé ekki eins lagleg og Iiinar. — Ég hef ekkert séð til liennar, sagði Mc Coy. — Bíddu við, ég ætla að spyrja Mary. Hann fór inn í húsið og Williams heyrði þau tala saman í lágum hljóðum. Stuttu síðar kom hann út aftur. — Jú, Mary hefur séð hana. Hún fór hér framhjá seint í dag. Mary kallaði til henn- ar, en hún leit ekki við. Hún hélt á eggja- körfunni sinni í hendinni. Ég hugsa, að hún hafi farið út á klettana. Járnsmiðurinn stóð dálitla stund óákveð- inn fyrir framan hann. — Þakka þér fyrir, Will. Nú ætla ég að fara heim, og ef hún verður ekki komin heim snemma í fyrra- málið, þá fer ég að leita að henni. Hann var hryggur í huga og áhyggjufull- ur, þegar hann gekk í gegnum kjarrið heim á leið í tunglskininu. Og þó að hann litlu síðar legðist til hvílu í mjúkt og hreint rúm, sem Fasto hafði búið um, gat hann ekki sofnað. Við sólarupprás lagði hann af stað með Martiu og einum Tahitibúa. Þeir tóku minnsta villimannabálinn og reru honum fram á milli skerjanna. Þeir reru framhjá cddanum við lendingarstaðinn og gættu vandlega upp í klettana. Þegar þeir vom komnir framhjá austasta odda eyjarinnar, reru þeir inn á víkina, sem liggur við rætur hæstu klettanna. Um leið og báturinn lyfti sér á báru, hrópaði Tahitibúinn upp og benti á ströndina undir klettunum, þar sem einhver þústa lá við hliðina á litlu panda- rustré. — Róið upp að ströndinni, skipaði járn- smiðurinn hörkulega. — Williams horfði starandi augum á þessa þústu. Hann stökk út úr bátnum áður en hann kenndi grunns, og á meðan hinir mennirnir reyndu að varna því, að báturinn tæki út í útsogunum, hljóp hann til panda- rustrésins. Víkin þarna var afskekkt og eyðileg, girt á alla vegu af mörg hundruð feta háum hömrum. Sólin varpaði geislum sínum á klettana vestan við víkina, sem voru þétt- setnir þúsundum fagurfjaðraðra sjófugla. Williams reikaði í spori, þegar hann kom aftur að bátnum, tók kápu úr tapa- klæði og fór með hana að pandarustrénu. Hann breiddi kápuna yfir limlest og blóð- stokkið lík Fasto og kraup niður við hlið þess. Þegar hann heyrði fótatak Martins bak við sig, gaf hann honum bendingu um að fara burt. Hinir mennirnir stóðu þögulir um stund. Síðan reikuðu þeir afsíðis eftir fjörunni meðfram hömrunum. Eftir stutta stund kall- aði Williams á þá. Hann stóð við bátinn með lík Fasto í faðmi sér. Hann lagði lík-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.