Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 31

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1955, Page 31
N.Kv. PITCAIRN-EYJAN 115 hús Christians. Brown kom síðastur. Þegar hann var seztur hjá hinum, stóð Christian upp, og skvaldrið í hópnum þagnaði. — William, hefur þú sagt hinum livers vegna við erum komin hér saman? — Nei, herra. Eg áleit að það væri bezt, að þii segðir þeim það. Christian kinkaði kolli. — Eg hef kallað ykkur öll saman, sagði hann, — til þess að leysa vandamál, sem snertir hvern einasta mann og konu hér á eyjunni. Williams hef- ur misst konuna sína. Hann segir, að hann verði að fá aðra konu. Hann þagnaði og einhverjir heyrðust segja. — Hann fær aldrei okkar konur. — Hann vill fá Hutia, konu Tararns, sagði Christian. — Hana hefnr liann haft, þegar hann hefur viljað, skaut einhver inn í. — Williams reis snögglega upp og ætl- aði að svara, en Christian stöðvaði hann. — Það kemur okkur ekki við. En nú krefst hann að fá liana á heimili sitt. Hann krefst þess að hún yfirgefi mann sinn og verði framvegis talin kona sín, og hann hef- ur beðið mig að bera þetta mál undir at- kvæði ykkar. Löngun hans til að fá konuna er eðlileg. Undir venjulegnm kringumstæð- um hefði það verið mál, sem honum einum við kom, en eins og nú stendur á hjá okk- ur, er það ekki einkamál. Deilur um kven- fólk eru alltaf hættulegar, en í litlu þjóðfé- lagi, eins og okkar, geta þær orðið örlaga- ríkar. Maður þessarar konu er ættingi Mi- narii, sem, eins og þið öll vitið, er siða- vandur maður og höfðingi meðal sinnar þjóðar. Haldið þið, að hann geti sætt sig við að Williams taki konu Tararns, og hvað mun Tararn sjálfur hugsa. Réttlætið er það sama gagnvart okkur öllum. Blökkumenn- irnir eru jafn næmir fyrir óréttlæti og Eng- lendingar. Hér eru tveir þjóðflokkar og ennþá hefur ekki komið til blóðugra á- rekstra á milli okkar. Ef til orrustu kæmi yrði afleiðingin algerð tortíming okkar allra. Christian þagnaði. Lágt skvaldur heyrð- ist frá mönnunum, sem lágu í grasinu. Mills talaði fyrstur máli vinar síns. Ég er algerlega með John. Við erum þó alltaf fremri blökkumönnunum. — Alveg rétt, sagði Martin. — Rétt? endurtók Mc Coy, — það get ég ekki fallist á. Ég er algerlega á sama máli og Christian. Það er ekki John að þakka, þótt ekki hafi ennþá komið til á- rekstra. Ég er ekki smásálarlegur. Williams getur notið Mary með mér, ef liann vill. — Hafðu Mary sjálfur, hreytti Willi- ams út úr sér. — Eruð þið tilbúnir til þess að greiða atkvæði? spurði Christian. Munið að að- eins einu sinni verður greitt atkvæði um þetta mál. Við erum allir ákveðnir að hlýða atkvæðagreiðslunni hvernig sem hún fer. Þið, sem samþykkið að Williams fái konu Tararnfe, réttið upp hendina. Aðeins Mills og Martin réttu upp hendurnar. — Við erurn sex á móti þremur Willi- ams, sagði Christian. — Ég býst við, að þú verðir síðar meir ánægður yfir þessum úr- slitum. — Ég skal beygja mig fyrir þessum úr- slitum, sagði járnsmiðurinn dræmt. Maí leið. í júnímánuði byrjaði veturinn. Kaldir suðvestan stormar blésu án afláts. Eftir sólarlag varð svo kalt í veðri, að fólk- ið var fegið að halda sér innan dyra. A þessuin kvöldum var ekki mikil glað- værð í húsi járnsmiðsins. Frá þeim degi er atkvæðagreiðslan fór fram, hafði hann ver- ið fátalaður og þunglyndur. Mills reyndi árangurslaust að lífga liann upp, en að lok-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.