Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Blaðsíða 10

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Blaðsíða 10
72 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. að fást við reipin. Indíáninn ungi frá Le Barge hafði verið að leysa hnútana. Hann reis á fæt- ur og var auðséð á hreyfingum hans, hve þreyttur hann var. Augnaráð hans lýsti afskap- legri undrun. Hann leit flóttalega í kringum sig, því hann var öllu þessu mjög óvanur. Hann fann alt í einu, að hann var miklu grunn- hygnari, en hann hélt sig vera. Hann skalf eins og hrísla og kiknaði í knjáliðunum og síðan steyptist hann niður á sleðann. Rað varð dimt í hugskoti hans og hann misti meðvitundina. »Ekkert annað en þrey(a,« sagði Elam Harnish. »Einhver ykkar verður að fara með hann og koma honum í rúmið. Þetta er góður Indíáni.* Watson skoðaði manninn og mælti síðan: »Lofteldur segir satt. Maðurinn er alveg frá.« Póstsendingarnar voru athugaðar og komið til skila. Rað var farið burt með hundana og þeim gefið að eta. Bettles kyrjaði vísuna um Sassafrasrótina. Fólkið raðaði sér umhverfis veitingaborðið, spjallaði og drakk og borgaði og tók á móti upphæðum þeim, er það hafði unnið og tapað í veðmálinu. Nokkru síðar var Elam Harnish farinn að dansa hraðstíginn »vals« við jómfrúna. Hann hafði farið úr kufli sínum, og klæðst ullarslopp og sett upp loðiiúfu. Hann hafði líka klætt sig úr moccasínunum, sem voru mjög frosnar og dansaði á sokkunum. Hann hafði orðið votur upp að hnjám þá um daginn en eigi hirt um það og haldið áfram. Háu ullarsokkarnir hans voru því svellaðir mjög. ísinn smábráðnaði í hitanum þar inni, en eftir sátu klakadrönglar. Pegar hann fór að dansa rákust drönglarnir hvor á annan svo að glamraði í þeim og duttu þeir á gólfið smátt og smátt, og varð því gólfið alt sleypt og ilt að dansá á því. En enginn reiddist Lofteldi fyrir þessar sakir. Hann var einn hinna fáu löggjafa í þessu fjarlæga landi, siðfræðislegur leiðtogi landa sinna. Hann sýndi þeim með breytni sinni hvað rétt var og rangt. En honum voru þó eigi að síður engar skorður reistar. Hann var einn á meðal þeirra fáu manna, er aldrei verða fyrir aðfinsl- um. Alt sem hann gjörði var talið gott og gilt, hvort sem aðrir máttu gjöra það líka eða ekki. Auðvitað eru slíkir menn hafðir í svona miklum hávegum sökum þeirrar staðreyndar, að þeir gjöra ætíð það sem réttast er þegar eitthvað áreynir og gjöra það þann veg, að meiri göfgi og tign kemur fra.n í verkum þeirra, en annara manna. Og þessvegna var Lofteldur undantekning frá öltum reglum þeirra. Hann, sem var talinn meðal elstu hetja landsins og var þó yngri að árum, en flestir viðstaddir, hann var vera, miklu æðri öllum hinum, og óviðjafnanlegur að allri karlmensku. Pað var því engin furða þó jómfrúnni líkaði vel að hann vafði hana örmum og dansaði við hana hvern dansinn á fætur öðrum. En ánægja henn- ar var mun blandin af því hún vissi, að hann skoðaði hana sem góða vinkonu og ágæta dansmey og ekkert meira en það. Pað var henni lítil huggun að vita, að hann hafði aldrei unn- að neinni annari konu. Hún var veik af ást til hans og hann tók hana ekki fram yfir aðrar stúlkur, jafnvel ekki fram yfir karlmenn þá er þezt dönsuðu og höfðu klút bundiun um hand- legginn til merkis um, að þeir væru »dömur«. Einusinni um kvöldið dansaði Elam Harnish við einn þessara manna. Pað hafði jafnan ver- ið talinn öruggur vottur um þrautsegju, á með- al þeirra er bjuggu á landamærunum, ef ein- hver gæti hringsnúið öðrum manni þar til hann misti fótanna. Bensi Dawis hafði bundið mis- litum klút um handlegg sér. Hann fékk Elam Harnish til að dansa við sig Virginíu-»ræla« og þá var gaman á ferðum. Hitt fólkið hætti að dansa, þokaðist fjær og horfði á þá. Peir tóku að hringsnúast og þeir héldu áfram að hringsnúast, altaf í sömu átt. Fréttin barst inn í hinn mikla veitingasal og allir yfirgáfu spilin og vínið. Alla fýsti að horfa á og söínuðust saman í þéttan hnapp inni í dansstofunni. Pað var Ieikið á hljóðfæri án afláts, og piltar þess- ir héldu áfram að hringsnúast. Dawis var þessu þaulvanur og hafði jarðvarpað mörgum hraust- um dreng í því héraði. En þó leið ekki á löngu áður augljóst var, að það mundi verða

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.