Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Side 13

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Side 13
HETJAN í KLONDYKE. 75 frá Winconsin, hæglátur maður og þéttur f lund. »Eg fer með sleðann minn og hundana mína,* svaraði Elam Harnish. »F*á höfum við tvö sameyki ogverður helmingi léttara að draga, en ef einn sleði væri. En við verðum að hafa stutta áfanga fyrst framan af, því hundarnir hljóta að vera mjög þreyttir.* Þeir félagar urðu stórglaðir, en þorðu þó varla að trúa þessu. »Heyrðu nú til,« mælti Jói Hines af þjósti. »Engin fíflalæti, Lofteldur. Petta er fúlasta al- vara. Viltu fara með okkur?« Elam Harnish tók í hönd honum og hristi hana. »F)að væri bezt fyrir þig að fara hátta,« kallaði Elías. »Við förum á stað klukkan sex og okkur mun ekki veita af fjögra tíma svefni.* »Ef til vill ættum við að bíða einn dag og lofa honum að hvíla sig?« sagði Finn. En þarna hitti hann veiku hliðina á Elam Harnish. »Nei, það skal aldrei verða,« hrópaði hann. »Við förum allir klukkan sex. Hvenær á eg að vekja ykkur, piltar? Klukkan fimm? Pað er gott — þá vek eg ykkur alla um það leyti.« »F*ú ættir að leggja þig útaf stundarkorn,« sagði Elías alvörugefinn. »Ekki er þrek þitt óbilandi.« Lofteldur var þreyttur, verulega þreyttur. Einu sinni hafði þreytan unnið bug á honum þótt jötunefldur væri. Hver vöðvi heimtaði svefn og hvíld og hrylti við nýrri ökuför. Lík- aminn mótmælti, gjörði uppreisn og sendi þau skilaboð til heilans. En þá brauzt fram í sál hans afl, sem var öllum öðrum sterkara, sigur- hvöt lífsins með alla sína fyrirlitningu og mót- þróa. Hún hvíslaði því að honum, að þarna stæðu félagar hans og horfðu á hann og nú væri tími til kominn að viuna frægðarverk á frægðarverk ofan, sýna þrek sitt og sigra, og það einmitt hér, því hér væru allir metnir eft- ir því, hve þrekmiklir þeir væru. Þetta væru ekkert annað en gömlu lífslygarnar. Og »whisk- yið«, með alt sitt gort og hroka, gekk í lið með þeim. »Kanske þið haldið að það sé ekki búið að venja mig af brjósti ennþá?« spurði Harn- ish. »Eg hefi ekki drukkið eitt einasta staup, ekki dansað einn einasta dans og ekki séð nokkra lifandi sál í fulla tvo mánuði. Farið þið bara að hátta, piltar. Eg skal vissulega vekja ykkur klukkan fimm.« Svo dansaði hann á sokkunum alla nóttina og klukkan fimm um morguninn barði hann allrösklega að dyrum hjá félögum sínum og söng sönginn, sem hann dróg nafn af: »Loftið Iogar! Heyri það allir glæframenn, sem ætla til Stewartár. Loftið logar! Loftið logar! Loftið logar!« 7. KAFLI. Nú var Iéttara að aka. Slóðin var harðtroð- in og þeir þurftu ekki að flytja póst og lá ekki mikið á. Dagleiðirnar voru styttri og minni áreynsla. Á póstferð sinni hafði Lofteldur upp- gefið þrjá Indíána, en þessir nýju félagar hans vissu að þeir yrðu að treyna krafta sína þar til þeir kæmu til Stewartár og máttu því ekki fara eins hart. F*eir þreyttust að vísu allmjög, þó hægt væri farið, en Elam Harnish hvíldist og hrestist til fulls. Peir urðu að hvíla hundana tvo daga í Forty Mile og svo skyldu þeir hunda Loftelds eftir hjá kaupmanninum í Sixty Mile. F*eir entust þeim mun ver en húsbóndi þeirra, að þeir komust ekki lengra og varð að fá aðra hunda til að draga sleðann. Nóttina eftir Iétu þeir fyrirberast í eyja klasa í mynninu á Stewart-fljótinu, Elam Harnish fór að tala um byggingarlóðir. Félagar hans hlóu að honum, en samt sló hann eign sinni á allar þessar háu skógivöxnu eyjar. »Setjum nú svo, að gullið mikla finnist hérna við Stewart,* sagði hann. »Ef til vill verðið þið við það riðnir, piltar, og ef til vill ekki; en það eitt veit eg, að eg skal koma þar. Ykk- ur væri betra að hugsa málið betur, og gjöra svo sama og eg gjöri.« 10*

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.