Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 14

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 14
76 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. En þeir voru óbifanlegir. »Pú ert eins vit- laus og Harper ogjói Ladue,« sagðijóe Hines. »Petta gjöra þeir sér til skemtunar. Rú kannast sjálfsagt við stóru sléttuna rétt fyrir norðan Klondyke við rætur Moosehillsfjallsins. Og nú skal eg segja þér eitt. Skrásetjarinn í Forty Myle sagði mér, að þeir hefðu merkt hana fyrir tæp- um mánuði. — Byggingalóðir Harpes og Ladu- es! Ha, ha! hæ!« Elías og Finnur hlóu líka en Elam Harnish var enginn hlátur í huga. »Rað er rétt,« mælti hann. »Það er gróða- vissan, sem farin er að láta á sér bera. — Hún Iiggur í Ioftinu skal eg segja ykkur. Hvers vegna skyldu þeir vera að merkja þessa sléttu, ef þeir tryðu ekki á gróðann? Eg vildi óska að eg hefði gjört þetta.« Þeir heyrðu að hann var óánægður og skelli- hlóu. »Já hlæið þið bara, piltar. En þarna kom- um við að þeim annmarka, sem er á ráði ykk- ar allra. Þið haldið að ekki sé hægt að höndla gæfuna með neinum öðrum hætti en grafa gull. En eg segi yður — þegar hið mikla gull finst, þá munuð þið allir krafsa upp moldina og ata ykkur í aurnum, en það verður skollans lítið sem þið fáið í ómakslaun. Þið hlæið ef einhver hleður byssu sína með kviku silfri og þið hald- ið að Guð almáttugur hafi ekki skapað gull- duftið til annars, en að gabba lítilssiglda menn og skrælingju. Þið viljið ekkert annað en stór- gerðan gullsand. Þið eruð nú einu sinni svona gjörðir. En ykkur notast ekki helmingurinn af því gulli, sem hægt er að fá, og svo rýkur helmingurinn af því, sem þið fáið út í veður og vind. En þeir sem hreppa miklu vinningana það eru þeir, sem eiga byggingarlóðirnar, þeir sem mynda verslunarfélögin og stofna bank- ana — « Hann þagnaði, því nú glumdu hlátursköllin. Bankar í Alaska! Sú húgmynd var afskaplega hlægileg! »Já, og kauphallir — « Þeir ultu um sig af hlátri. Jói Hines velt- ist um koll á svefnpoka sínum og stua'di hönd- unum á síðurnar. »Og svo koma hinir miklu námukongar þar á eftir, Þeir kaupa stór landflæmi, þar sem þið voruð áður að kroppa líkt og þegar hæna er að tína grjón og þeir munu nota vatnshreyfi- vélar á sumrin og þýða með gufu á vetrum.« Þýða með gufu! Nei, nú skánaði það! Loft- éldur var allra mesti spilagosi, en aldrei hafði hann fundið upp á annari eins fjarstæðu. Þýða með gufu! — og það á þeim tímum, þegar ekki var einu sinni farið að reyna að þýða með viðareldi, en menn höfðu aðeins dreymt um það. »Já, hlæið bara bölvaðir uppskafningarnir ykkar! Þið eruð eins blindir eins og nýgotnir ketlingar. Eg skal segja ykkur það, ef gull finst í Klondyke, þá verða Harper og Ladue milj- ónamæringjar. Én verði það við Stewart, þá munuð þið komast að raun um, að bygginga- lóðir Elam Harnish verða í afar háu verði. Þegar þar að kemur munuð þið allir koma og standa og glápa. Já,« mælti hann ennfremur og andvarpaði mæðulega. »Þá neyðist eg lík- lega til að hjálpa ykkur um ofurlítið nesti, gefa ykkur súpuspón, eða eitthvað þessháttar.* Elam Harnish var gæddur fjörugu ímynd- unarafli. Sjónarhringur hans hafði ákveðin tak- mörk, en þær myndir, er svifu fyrir hugskots- augum hans voru tilkomumiklar. Hugsanalíf hans var í góðu lagi; hann var hagsýnn og hugsaði altaf um eitthvað nytsamlegt. Þegar hann bygði borgir, í huganum, á snæviþöktum skógarsléttum, þá gjörði hann fyrrst ráð fyrir, að þar fyndist gull og afleiðingin af því varð borgarbyggingin. Svo ákvað hann hvar skipa- bryggjurnar, sögunarmillurnar og vörugeymslu- húsin ættu að standa, og í stuttu máli alt það, sem til heyrir námubæ á norðurhjara veraldar. En þetta var raunar ekki nema umgjörð utan um annað stærra, einskonar verksvið fyrir í- myndunaraflið. í hugsjónaborginni hans var hægt að raka saman fé með ýmsu móti, bæði með því að byggja hús og slræti og fram- kvæma ýmiskonar búhnykki. Hún var geysi-

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.