Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 24

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 24
86 NÝJAR KVÖLDVÖKUR. í kirkjunnar metorðum, eins og eg hafði verið kominn í ríkisins. Eg þótti sá ráðsnjalli, hug- djarfi og óskeikuli, svo eg varð brátt ráðunaut- ur þeirra hæðstráðandi, og yfirmerín kirkjunn- ar leituðu ráða til mín í samviskumálum sin- um. En mundi eg sjálfur geta staðist freist- ingar djöfulsins? Æ nei, eg gerðist skrifta- faðir í nunnuklaustri og fann þar hina mistu ástmey mína. Hlýfðu mér við frekari synda- játning. Brotleg nunna sem fremur sjálfsmorð fyrir brot sitt, sefur róleg í einum afhelli í En- gaddi. Og maðurinn, sem hefir þó svo mikið vit enn, að hann til fullnustu finnur til óham- ingu sinnar, stynur, andvarpar og barmar sér yfir gröf hennar.« »Óhamingjusami maður,« hrópaði konung- ur, »nú furðar mig eigi á, hve aumlega þú berð þig. En hvernig komst þú undan þeirri hegningu er Iög kirkjunnar setja fyrir slík af- brot?« »Pað mun hafa verið breitt yfir* afbrotið sakir ættgöfgi minnar og orðstýrs. En það vil eg segja þér, konungur, að forsjónin þyrmdi lífi mínu til þess að setja það sem blys í eyði- mörku, hvers aska felli niður í gjótur undir- djúpsins, þegar hinn jarðneski eldsmatur væri útbrunninn. Hversu visnaður og skorpinn sem líkami minn er, þá búa í honum tveir andar — annar er starfandi, þróttmikill og hygginn og vinnur í þarfir kristilegrar kirkju. Hinn er vol- aður, fyrirlitinn og sturlaður, og haltrará milli brjálsemi og eymdar. Vorkennið mér ekki. Það væri synd að aumkva slíkt afhrak, dragið held- ur lærdóm út af hrakföllum mínum. Rú stend- ur nú á þeini hæsta en um leið hættulegasta tindi, sem kristinn þjóðhöfðingi getur náð. Rú ert hrokafullur, svallsamur og hefir atað hend- ur þínar með blóði saklausra. Hrektu á brott þessar dætur þíns gamla Adams. Burt með hrokann, léttúðina og blóðþorstann!« Rikarði konungi þótti sér misboðið með áfellisdómi einbúans, en fanst hins vegar fyrir neðan virðingu sína að snúast illa við, eða láta þessar ásakanir bíta á sig. »Það er æði á hon- um,« sagði hann stillilega við Tómas barón, en við einbúann sagði hann í spottandi róm: »F*að eru þó fremur efnilegar dætur, eða liitt þó held- ur, æruverði faðir, hjá manni, sem eigi hefir verið giftur nema í fáa mánuði, en fyrst eg á að reka þær af heimilinu, verð eg eins og myndarlegur faðir að sjá þeim fyrir sæmilegu gjaforði, og vil eg þá gefa drambsemina hin- um háu herrum kirkjunnar, léttúðina, er þú svo nefnir, reglumunkum kirkjunnar og dráp- girnina Templarherranum.« »Með hjarta úr stáli og hönd úr járni enn sem fyr,« sagði einbúinn, »hjá hverjum bæði ráð og fortölur eru árangurslausar. En þér er enn gefinn frestur, svo eigi er vonlaust að þú lærir að breyta meira eftir kenningum kirkjunn- ar en stundum fyr. Eg hefi nú lokið erindi mínu og verð að snúa afturtil minna einmana- legu heimkynna. Herrann miskunni þér og veiti náð til afturhvarfs. Hinum fátæku verður að bjóða til kvöldmáltíðar, því hinir ríku mæta eigi. Herrann miskunni þér.« Að svo mæltu þaut hann með hljóðum út úr tjaldi konungsins. »Hann er bandóður!« sagði konungur, og voru nú nær horfin áhrif þau, sem raunasaga mannsins hafði haft á hann. »Farðu á eftir hon- um, herra Tómas, og sjáðu um að honum verði eigi misboðið af dátunum. Rví vikur nú svo við, að þótt við séum krossfarar, bera margir af hermönnum vorum meiri virðingu fyrir lodd- urum en munkum og prestum, og því má vera að þeir á einhvern hátt áreiti hann og æsi að óþörfu.« Baróninn hlýddi og konungur hélt áfram að ganga um gólf og fór að hugleiða hina ömurlegu spádóma einsetumannsins, sem vöktu hjá honum áhyggjur en ekki ótta. Eftir stund- arkorn kom baróninn aftur inn í tjaldið og spurði konungur hann þá tíðinda. »Rú kallar hann geggjaðann, klerkinn, herra!« sagði baróninn. »En mér virðist hann miklu fremur mega kallast hrópandi rödd i eyðimörku eða andlegur skírari. Hann hefir tekið sér stöðu upp á einni hernaðarvélinni og þaðan prédik- ar hann yfir fólkinum með þeim krafti og anda- gift, er hrífur alla og aldrei hefir heyrsl hér fyr.

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.