Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 26

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Síða 26
88 \ NÝJAR KVÖLDVÖKUR. mynd var líka af hennar konunglegu tign og dóttur hennar litlu. Hún mundi ekkert eftir því, þegar þessi mynd var tekin, enda var hún þá aðeins tveggja ára gömul, En hún horfði oft á þessa mynd og djúp þrá iýsti sér í augnaráðinu, og henni þótti það undarlegt, að mömmu hennar skyldi auðsjáanlega hafa þótt miklu vænna um hana áður fyr, þegar hún gekk á stuttum knipluðum kjólum með litla hvíta silkiskó á fótum og gat ekki gengið eins fallega og nú heldur aðeins trítlað. Nei, það gat enginn efi leikið á, að mömmu hennar stóð alveg á sama um hana fyrst hún hefði gleymt afmælisdeginum hennar. Hans konunglega hátign var heima núna og hann hefði heitið henni því um morgun- inn, statt og stöðugt, að lofa henni með sér á hestbak. Regar búið var að snæða morgunverð, hafði hún verið klædd í reiðfötin og brúnu stígvél- in háu. Svo hafði hún farið ofan til að segja honum, að hún væri tilbúin. Pá hafði hún fundið hann í lestrarstofunni. Hann sat þar við stóra skrifborðið sitt og huldi andlitið í hönd- um sér. Hann hafði áreiðanlega gleymt Ioforði sínu, eða langaði ekki til að efna það, því hann virtist ekki verða var við fótatak hennar. Og Ketty prinsessa laumaðist út aftur. Hún hafði aldrei séð karlmann gráta, en það fann hún einhvern veginn, að ef hún hefði gengið til hans og Iyft upp höfðinu á honum þá mundi hún hafa séð tár í augum »fallegasta mannsins í heiminum«. Hún gekk hægt upp breiðu stigaþrepin og til herbergja sinna og bað stofustúlkuna að klæða sig úr þessum bún- ingi. »Við förum ekkert út,« sagði hún við stofu- stúlkuna og lét þessa stuttu skýringu nægja. Stúlkan hafði þjónað »litlu hátigninni« eins mikið og barnfóstran, síðan hún var hvítvoðungur. Hún andvarpaði lágt og hristi höfuðið, þegar hún sá að litla barnsandlitið var svona alvar- legt. Og hún fann að það var satt, sem fóstran sagði, að hátignin væri farin að »taka eftir hlutunum«. Pað dimdi óðum svo að litla stúlkan gat nú ekki séð ofan í garðinn, þar sem haustnæðing- urinn feykti blöðunum fram og aftur. Svo var ljós kveikt til þess hún gæti skoðað myndirn- ar í blaðinu. Pað heyrðist ekkert skrjáf, þegar hún fletti blöðunum. Henni varð starsýnt á þessa fyrirsögn: Nýungar frá hœrri stöðum. Hún fór alt í einu að lesa með miklum ákafa. Henni þótti gaman að þessum smágreinum, af því mamma hennar var oft nefnd þar. Hún rendi augunum niður eftir dálknum og þau staðnæmdust snögglega: »Hertoginn af Bels er kominn aftur frá Ítalíu. Síðastliðinn laugardag sat hann hina miklu kvöldveizlu hjá greifafrú Harmsters. Prinsessan þektl herlogann. Hann kom oft þar í höllina, þegar hennar konunglega hátign var heima. Hann var ósköp alúðlegur, en augu hans voru svo fjarskalega þunglyndisleg. Hann færði Ketty æfinlega stórar öskjur fullar af góð- gæti. Einusinni hafði hann gefið henni ofurlít- ið armband ósköp fallegt. Hún hélt áfram að lesa: »Hennar konunglega tign, prinsessa Irena, er væntanleg heim í dag. Hún hefir verið í heimsókn í Berlín —« Mamma hennar ætlaði að koma heim —- já, hún var kanske komin. Hún horfði í gaupni sér og varð hugsi. Hún vissi raunar ekkert, en setti þó frásögn þessa í sambandi við það, hve illa hefði legið á pabba hennar um morguninn. Hún rendi aftur augunum yfir dálkana í blaðinu uns hún fann það, sem hún átti von á: ,»Hans konunglega tign, Frans Heinrich, fer til Parísar næstu daga.« Svona var það æfinlega. Pegar mamma hennar var heima, þá var pabbi hennar æfin- lega á ferðalagi. Aldrei gátu bæði hjónin bú- ið í einu í hinni miklu og tignarlegu höll, sem orðlögð var fyrir dýrmætu listaverkin og hina ómetanlegu helgidóma ættarinnar. Ketty litla var æfinlega annað hvort föður eða móðurlaus. Hún fékk sting í hjartað, þegar hún leit á þessar eð,

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.