Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 01.04.1918, Side 27
LITLI PÍSLARVOTTURINN. 89 sakleysislegu smágreinar, og gerði sér ekki ljósa grein fyrir hvernig á joví stóð. Pað leit út fyrir að nú væri hún í fyrsta sinn að fá veður af þeim sorgarleik, sem í þeim fólst. Prinsinn ætlaði til Parísar. • Guð einn vissi hvort hann langaði nokkuð til þess. Skyldi það hafa verið vegna þess að honum væri óljúft að fara, að hann var svo sorgbitinn í morgun í lestrar- stofunni ? Litla stúlkan þekti af reynslu hvernig það er, að verða að gjöra eitthvað, sem maður vill ekki gjöra. Dyrnar að baki hennar opnuðust og inn kom fóstran. »Guð blessi barnið!« Barnfóstran var nokk- uð við aldur. Hún nam staðar í dyrunum og horfði á litlu fallegu stúlkuna. Hún unni henni eins og dóttur. Hún hafði ætíð elskað hana eins heitt og móðir elskar barn sitt, alt frá þeirri stundu, að henni var falið í hendur að annast barnið nýfætt. Hennar konunglegu hátign þótti ekki gam- an að börnum. Hana hafði aldrei langað til að eignast barn. Hún mundi harla sjaldan eftir því, að hún átti litla dóttur og kæmi það fyrir, þá sendi hún litlu prinsessunni einhvern fal- legan og dýran hlut að gjöf og þaggaði á þann hátt raddir samviskunnar, sem voru að byrja að láta til sín heyra. Skyldi hún hafa gleymt því, að í dag var tíu ára afmæli Kelty, eða var henni mótstæðilegt að minnast þess, að bráðum átti hún fullorðna dóttur? Ketty prinsessa leit á fóstru sína. Fallega litla andlitið hennar var eldrautt af ofnhitanum. Stóru og gráu augu hennar leiftruðu, er hún tók til máls: »Mamma kemur, eða kanske hún sé komin?« »Guð blessi barnið,« tautaði fóstran vand- ræðalega. Hún kom auga á myndablaðið, laut áfram og greip það í flýti. »Hvað oft þarf eg að segja yður það, Ketty prinsessa, að þér megið ekki lesa þetta blaða- rugl?« Hún var sárgröm. »Pað er að eyða tímanum til ónýtis, og flest það, sem stendur í blöðunum, er ósatt.« Prinsessan rendi niður skrítna brjóstsykur- molanum og stóð upp. »Pabbi er að fara til Parísar,* sagði hún. Fóstran glápti á Ketty eins og hún hefði aldrei séð hana áður. Henni fanst hún aldrei hafa séð neitt eins óviðjafnanlega fagurt, eins og þetta barn, sem þarna stóð í hvíta kjólnum og með dökku lokkana, sem hrundu niður að beltisstað. Hver einasta móðir hlaut að miklast af því, að eiga slíka dóttur og það eins, þótt sú móðir væri konungborin. Já, líklegt var það. »Þegar mainma kemur heim, þá fer pabbi æfinlega,« sagði litla stúlkan íbyggin, eins og hún hefði uppgötvað eitthvað merkilegt. »Pau eru eins og karlinn og kerlingin í veðurvitan- um. Annað þeirra kemur út á undan rigningu og hitt þegar sólskirt er, en þau sjást aldrei.« Orð barnsins voru næsta átakanleg. Fóstr- an leit undan tárvotum augum. »Hvaða rugl er þetta?» mælti hún stutt í spuna. Hún böglaði blaðinu saman og fleygði því í eldinn. »Má eg spyrja, Ketty prinsessa, hversvegna skyldi ekki konunglega hátignin hann faðir yðar fara til Parísar hvenær sem hann langar til?« »En hann langar alls ekki til þess,« sagði litla stúlkan ákveðin. / Herra Hintz, herbergisþjónn hans konung- lega hátignar, var í óða önn að búa utn far- angur, þegar dyrunum að búningsherberginu var lokið upp og Ketty prinsessa læddist inn. Herbergisþjónninn hrökk við. Hann hafði verið annars hugar. »Gott kvöld, herra Hintz!« sagði hún ofúr kurteislega. »Gott kvöld, yðar hátign!« sagði hann. Prinsessan lokaði dyrunum og færði sig nær honum og starði á liann um hríð. Hintz var að láta skyiturnar hans húsbónda síns niður í ferðaskrínu. Pað var stór skyrtu stafli. »Þér farið líklega rneð honum til Parísar, herra Hintz?« »Já, yðar hátign.« 12

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.