Stjarnan - 01.01.1897, Page 16
14
hvar innum sé tekinn ísinn og saltið til blöndnnar.
Uppi yflr lopt-dyrum hússins að utan, sc talía til
að draga upp alt sem upp þarf að flytja, svo sem
salt, ís, o. þ. 1). Uppi á loptinu er Isinn malaður
(kurlaður) og blandað saman við saltið, (hrærður
saman við). Síðan eru öll liólfln til beggja hliða
fylt niður um götin með þessum salt-ís blendingi,
svo yðulega sem þörf krefur til þess að halda liólf-
unum mikið til fulluin, hve opt þess þarf er mest
undirir veðrinu komið (hitanum).
Vanaleg blöndun er einn tíundi af salti, móti
níu tíundu pörtum af ísmulningi.
I þessu liúsi or vara sú geymd sem búið er að
frysta.
■ II FRYSTIKLKFAK.
Svo núlægt dyrum frystihússins sem unt er,
séu frystiklefarnir bygðir, svo stórir og svo margir
sem þurfa þykir. Þeir séu byggðir undir þaki eða
inni í húsi. í þessum klefum er varan fyrst látin
frjósa, og síðan flutt inn í frystihúsið til geymsiu,
þar til hún er flutt til útsölu eða annað burtu.
Hver klefl þarf að vera svo mikið stærri að
flatarmáli (á gólfi), en samanlögð botnastærð allra
þeirra panna, sem fara í hvert eitt lag, sem svarar
því að minnst 2 þuml. rúm sé milli allra pannanna
(alt í|kring um hverja eina) og 3—4 þuml. rúm, í
það minsta, milli pannanna og veggja klefans alt í
kring“að innan (salt-ís rúm n.l.).