Stjarnan - 01.01.1897, Blaðsíða 42
88
fyrir þeirri upphæð með hálfs-annars dollars kaupi
hvern virkann dag, mundi þurfa 20 þúsund menn
i nærri 3 þúsund ár. Væri þessari summu hlaðið
upp, í eins-dollars seðlum, með þeirri pressu að
þrjú hundruð seðlar fari i hvern einn pumlung, þá
yrði sá stafli nærri 70 þúsund fet á hæð, eða um
hálfa fjórtándu mílu. Sé þessari summu jafnað
niður á alla jarðarinnar innbúa, þá kemur á hvert
mannsnef yfir $17.
METEAMÁLIÐ.
Lengdarmálið var lengi frameftir miðai við
ýmsar meira eða minna ónákvæmar stærðir eða
lengdir, svo sem t. a. m. fet, faðm, o. fl. En af því.
þessar lengdir þóttu svo ónákvæmar, þá fundu
menn upp á því, að afmarka þær í steina og víðar
til tryggjingar fyrir þvl að þær héldust í varan-
legu gildi. En jafnvel þari mörk þóttu þó ekki
fyllilega varanleg, því þan gátu máðst, og glatast
á ýmsan hitt, og auk þess voru þau mismunandi í
hinum ýmsu löndum, (t. d. enska og danska fetið o.
s. frv.). 0g vegna þess fundu frakkar upp á
metramálinu til þess að fá ákveðinn óbreytiletjann
grundvöll fyrir lengdarmálinu, og þá jafnframt
bæði flatarmálinu og teningsmálinu. En vegna
þess grundvöilurinn fyrir þyngdarmálinu (vygt-
inni) var jafn breytilegur og lengdarmálið (eins og