Tjaldbúðin - 01.01.1900, Page 7
— 5 —
aðsetur hans er í ensku landi og enskum bæ.
En með því að hann myndaðist hjá Islendingum,
þá er íslenzka mál hans.
Tjaldbúðarsöfnuður Winnipegi)æjar hefur
komið fram með fjölmörg nýmæli, sem áður hafa
eigi átt sjer stað hjá íslenzkum söfnuðum. Hann
hefur þess vegna orðið fyrir dæmafáum ofsókn-
um. Á þær er stuttlega drepið í »Tjaldb.« I.
bls. 19—28. Og þótt hann hlyti að standa einn
síns liðs gegn öllum árásum, þá stóð hann þó
vissulega vel að vígi, þegar um almenna sam-
keppni er að ræða. En Tjaldbúðarsöfnuður Winni-
pegbæjar hefur orðið fyrir öðrum ofsóknum, sem
eru annars eðlis en venjuleg samkeppni kirkju-
fjelaga. Óvinir safnaðarins hafa beitt dæmalausu
undirferli og undirróðri við hann. Þeir hafa
laumað leynilegum fylgifiskum sínum inn i söfn-
uðinn og haft leynilega »agenta« í söfnuðinum.
Hlutverk þessara manna var í laumi að gjöra
söfnuðinum allt það illt, er þeir gætu, og svíkja
hann í hendur óvinanna, er færi byðist.