Tjaldbúðin - 01.01.1900, Blaðsíða 13
11 —
safnaðarins í 5 ár. Og er það jafnlangur tími og
'C. H. Spurgeon auðnaðist að lifa hjá Tjaldbúð-
arsöfnuði sínum í Lundúnaborg, eptir að söfn-
uður sá var fullmyndaður 1887. En guð hefur
auðsýnilega ætlazt til, að sögu þessara tveggja
safnaða svipi dálítið saman.
Elskulegu vinir. Mjer þykir sárt, að þurfa
þannig að yfirgefa yður, en skyldan knýr mig
til þess. Og það gleður mig, að Tjaldbúðar-
söfnuður getur nú fengið prestsþjónustu. Það eru
einir 4—5 prestar, sem söfnuðurinn að öllum
líkindum getur valið um. Ef jeg mætti benda
söfnuðinum á einn sjerstakan prest öðrum fremur,
þá mundi jeg benda honum á sjera Stefán Páls-
son, bróður þeirra M. Pálssonar og V. Pálssonar
í Winnipeg.
Elskulegu vinir. Jeg er yður öllum af öllu
hjarta þakklátur fyrir alla yðar ástúð við mig.
Og síðan kveð jeg Tjaldbúðarsöfnuð með öllurn
blessunaróskum og grátbæni vorn þríeina guð að
vernda hann og blessa.
Með einlægri vinsemd og virðing.
Hafsteinn Pjetursson «
Samkvæmt þessari beiðni gaf Tjaldbúðar-
söfnuður mjer lausri frá prestsþjónustu hjá honum
frá 1. sept. 1899.
Kvennfjelagið sGleym mjer ei« hjelt mjer
skilnaðarveizlu í húsi herra Brynjólfs Teitssonar í