Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Qupperneq 26
Pilot gamla
(key-pt með
Bíldudal 1880 af
Hákoui Bjarnasyni).
náðu til, var það í almæli, að meðferð og verkun
á fiski væri ekki á öðrum stöðum á landinu betri
en þar. Minnist ég þess að skipstjórar þeir, sem
ég var með, lögðu mikla áherzlu á góða flatn-
ingu og góðan þvott á fiskinum í salt og úr salti.
Salt var ekki mikið notað nema sæmilegt þætti.
Heyrði ég og talað um, að nokkur keppni hefði
átt sér stað innbyrðis meðal skipstjóranna um
það, hver skilaði fallegustum fiski á land. Verk-
stjórar þeir, sem sáu síðan um verkun fiskjarins
í landi, létu ekki sitt eftir liggja um allan strang-
leik í meðferð og verkun fiskjarins. Frægð Bíldu-
dalsfiskjar á þeim árum átti sínar margþættu
orsakir.
Mig brestur heimildir um aflabrögð hin bíld-
dælska skipaflota á þessum árum. En það var í
almæli, að afli Bíldudalsskipanna yfirleitt væri
einna mestur vestfirzkra fiskiskipa. Að vísu var
þetta breytilegt frá ári til árs og ekki hvað sízt
vegna breytilegs tíðarfars. Einn var sá veiðiskap-
ur, er hófst á Bíldudal á þessum árum, sem hafði
verulega þýðingu fyrir fiskveiðarnar, þ. e. síld-
veiðin á vorin. Smásíld hefur sennilega gengið í
vestí. rzku firðina að vorlagi frá fyrstu tíð. A
vjginu.n á Bíldudal var veidd smásíld í djúpnót
og geyrnd í svonefndum lás, sem daglega var sótt
■ :.g selt til beitu hverjum sem vildi. Einar bóndi
Gislason í Hringsdal var veiðiformaður („not-
bass"). Yar hér um nýjan atvinnurekstur að
ræða, sem átti sinn þátt í að auka viðskipti við
kauptúnið. Þessi veiðiskapur mun ekki hafa orð-
ið langlífur, meðal annars af þeim sökum, að
síldin gekk ekki í fjörðinn.
IV.
Miklar líkur benda til þess að þilskipaveið-
arnar hafi gefið góðan arð. Má í því sambandi
benda á ýmsar framfarir í kauptúninu á þessum
árum. Aukin skipakaup, húsabyggingar varðandi
atvinnureksturinn, svo og stórra og myndarlegra
íbúðarhúsa. Fiskkaup hafði Pétur kaupmaður
mikil við útvegsbændur í Arnarfirði og víðar.
Þá var verzlun mikil á Bíldudal við nálægar
sveitir og hinn mikla fjölda verkafólks, er vann
við fyrirtækið á sjó og landi. Allt þetta saman-
lagt skapaði fjármagn að viðbættu lánstrausti til
þess að starfrækja eitt af hinum stærstu einka-
fyrirtækjum á Vesturlandi á þeim tímum. Skal
nú minnst þess mannsins, sem hafði skapað þetta
fyrirtæki, starfrækt og stjórnað því um fjölda
ára, Péturs J. Thorsteinsson. Kynni mín af hon-
um persónulega voru ekki ýkja mikil, en þó
nokkur, en á þá eina lund, að hann óx í mínum
augum við þau kynni.
Greindur maður og gegn, sem þekkti Pétur
kaupmann vel, lét uppi skoðun sína á honum á
þessa lund: „Hann var áræðinn. framsýnn og
hagsýnn kaupsýslumaður, gæddur skipulagshæfi-
leikum, árvakur og lipur stjórnandi.“ Mun hér
nokkuð rétt lýsing á Pétri kaupmanni í stórum
dráttum. Eins og margir menn í hans stöðu var
hann mjög umdeildur maður í umtali manna á
meðal og þá tíðast í sambandi við viðskiptamál.
Af eigin raun hafði ég ekkert af honum að segja,
sem benti til harðdrægni í viðskiptum, enda var
ég lítill og umkomulaus. Hitt gleymdist mér ekki,
hversu vinsamlega hann ávarpaði mig, 15 ára
6 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ