Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Page 31

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Page 31
Leifur hep-pni eygir Vínland. hið góða. hann lét undan, og er öldungurinn var kominn inn aftur og genginn til náða, hóf hann sögu sína. Það var fyrir um það bil 30 árum, ég reri þá hér á nesinu hjá fóstra mínum, en svo hef ég ávalt kallað Ásmund, því hann tók mig í fóstur þriggja ára. Þetta var um haustið, á jólaföstunni, við xer- um á áttæring, sem fóstri minn átti, gæftirnar höfðu verið með versta móti, sífelldur austan og norðaustan garri og þessi fádæma snjókoma, ég held að ég muni ekki eftir öðrum eins snjóa vetri. Við höfðum ávalt verið vanir að hætta snemma á jólaföstu og fara heim að Núpi og rérum þá ávalt vestur yfir á þriggjamannafari, en það var um tveggja tíma róður. Okkur langaði til að fara einn róður áður en hætt yrði, svo við gætum komið með nýtt í soðið heim, en það leit ekki út fyrir að það ætlaði að takast. Ég hafði tekið eftir því, að fóstri minn hafði verið eitthvað órólegur síðustu daga. Það var eins og hann gæti hvergi eirt. Hann rölti fram og aftur, niður að nausti og upp í búð, það var auðséð, að hann var áhyggjufullur út af einhverju. Og er hann loksins gekk af áttinni og lygndi og sýnilegt var að hann myndi snúa sér, stóðst fóstri minn ekki lengur mátið, hann vakti mig snemma um morgun og sagði: „Jæja, Þórður minn, ég þori nú ekki að vera lengur að heiman það snjóar svo mikið, það er bezt að við förum heim í dag“. Við bjuggum okkur nú í skyndi og löguð á stað. Það var komið stafa logn, en það mikið brim, að við komumst rétt með herkjum fram úr vörinni. Er við höfðum róið um stundarfjórðungs róður fór að koma lifandi alda innan úr firðinum, og brátt skall á okkur vestan rok. Mér kom í hug, að bezt myndi að snúa við, en Ásmundi hefir víst aldrei dottið það í hug, ég vissi líka, að þótt við kæmumst yfir myndi tvísýnt að við slyppum við „kollana“, sem eru hættulegustu skerin hérna í fjarðarmynninu, eins og þið vitið. Og ef við hefðum stefnu utan við þá myndum við aldrei sjá land. Nei hann sagði bara, „upp með seglið“. Ég hlýddi, með hálfum huga þó, eftir á fannst mér þetta ægileg fífldirfska. Sá gamli hélt bátnum upp í á meðan. „Stagaðu mastrið með fangalínunni,“ kallaði fóstri minn, ég hlýddi alveg forviða. Hvað ætlaði maður- inn að gera? Mastrið var nýtt og ágætir stagir á því. Þetta var brjálæði, það vissi ég þótt ég væri ekki nema 17 ára. Báturinn myndi ekki þola SJÓMANNADAGS6LAÐIÐ 1 1

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.