Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Síða 38

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Síða 38
Dagbókarbrot frá árinu 1933 eftir Sœotur í frásögn þeirri, sem hér fer á eftir, er á mjög skemmtilegan hátt sagt frá sönnu sjóferða- volki á kreppuárunum fyrir styrjöldina, og hefðu ungir menn, nú til dags, gott af því, að kynna sér hvað tveir ungir menn á þeim tímum urðu á sig að leggja, til að innvinna sér 300 krónur brúttó. Það er heimskreppa, þetta andstyggilega fyrir- brigði, sem óhjákvæmilega virðist sigla í kjölfar styrjaldanna, þessara ógurlegu meinsemda, sem mannfólkið, sem byggir þenna hnött, virðist ekki vera nógu þroskað til að losa sig við og losnar sennilega aldrei við á meðan viðhorfið milli hvers einstaklings er eins og það er. Hinir fáu ríku, ráða yfir og stjórna hinum mörgu fátæku. A meðan hagsmunir auðhringanna sitja í fyrirrúmi fyrir hagsmunum fjöldans, á meðan að stálkóngar, olíu- kóngar, gúmmíkóngar og hergagnaiðjuhöldar ráða gerðum annara valdhafa. Einn atburður verður orsök annars og atburðarásin verður eins og mylluhjól, sem snýst. Lögin eru skipulögð og misnotuð blygðunarlaust. Ófyrirleitnir áróð- ursmenn nota sér dómgreindarleysi almenn- ings og andvaraleysi gagnvart þeim meðulum, sem beitt er gegn þeim. En hvað um það, það er óþreifanleg staðreynd að kreppan er hér einnig og hefir krækt öngum sínum all óþyrmilega í okkur. Ég og félagi minn höfðum orðið fyrir barðinu á henni, skipið var selt undan okkur af því eigendur þess stóðu höllum fæti með afborg- anir í bönkunum. En við erum vongóðir fyrsta kastið í landi, því að við ráðum yfir nokkurri þekkingu, ég hef skipstjóraréttindi og hann vél- stjóraréttindi. Eftir þriggjavikna ráp í landi áskotn- ast okkur líka starf, sem byggist á þekkingu félaga míns, það er sem sé, að taka sundur 50 hestafla Bólindersvél og setja hana síðan saman aftur og skildum við að því loknu gefa vottorð um ásig- komulag hennar og hæfni. Þetta gekk nú allt sæmilega, vinnan var vel af hendi leyst og allir aðilar ánægðir, en þá vildi það óhapp til, að félagi minn þurfti að skreppa fyrirvaralaust úr bænum og það féll því í minn hlut að gefa vottorðið. Ég held líka, að það sé það einkennilegasta plagg um slíka hluti, sem ég hef séð, en hvað um það, peningana fékk ég ekki nema að gefa vottorðið og fyrst að vinnuveitandinn var ánægður, já hvað átti ég þá að vera að velta vöngum. En 50 krón- urnar, sem við fengum í part, hrukku ekki lengi þrátt fyrir ýtrustu sparsemi og ég, sem ætlaði að fara að gifta mig, auðvitað átti ég ekki nóg til að borga prestinum og því urðu allir aðilar að bíða og vona. Einn góðan veðurdag í nóvember hitti ég út- gerðarman, sem ég þekkti og spurði hann mig hvort ég vildi ekki taka að mér að sækja fyrir sig vélbát norður á Siglufjörð. Ég brást glaður við og hélt nú að ekki stæði á mér til þeirra hluta og síð- an fórum við að semja um kaupið, en það var nú einn sem réði, og hann sagði að það skyldi vera kr. 300,00 og ætti ég að borga allan kostnað. Ekki var nú þetta glæsilegt tilboð, en ekki var um ann- að að ræða en að taka því. Og svo setti hann það skilyrði að við yrðum þrír. Við félagamir ræddum þetta mál fram og aftur og komumst að þeirri niðurstöðu að það yrði lagleg útkoma eftir túr- inn fyrir tvo hvað þá heldur fyrir þrjá. Við gáf- um því fjandann í öll fyrirmæli og ákváðum að fara tveir. Nokkrum dögum seinna tókum við okkur far með e/s Gullfoss og átti hann að koma við á þrem stöðum og þar á meðal Hesteyri. Segir ekki af ferðum okkar fyr en á Hesteyri, vorum við orðnir matlystugir mjög því að ekkert höfð- um við smakkað af mat frá því að farið var frá Reykjavík því nú átti að spara, enda var skot- silfur með naumasta móti. Ég þekkti fólk í þorp- inu og ákvað að hætta á, að við félagar legðum upp í klukkutíma göngu í von um að ég gæti 18 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.