Sjómannadagsblaðið - 04.06.1950, Side 74
/ meir en aldarfjórðung hefur
Alþýðublaðið
Það tr viður.kennt, að aldrei hafi jafnmiklar framfarir orð-
ið á jafnskömmum tíma í Jífi þjóðarinnar og á þessum aldar-
fjórðungi. Og það er staðreynd, að mestar hafa framkvæmd-
irnar orðið hjá fólkinu sjálfu, á aðbúnaði þess, kjörum þess,
öryggi og atvi.nnu, þó enn sé fyrir mörgu að gerjast á því sviði
Alþyðublaðið
hefur alltaf verið frumherji í þeirri baráttu.
Sjómannastéttin veit það allra stétta bezt. Hún gleymir ekki
baráttunni fvrir hvíldartímanum á togurunum, baráttunni
fyrir öryggismálum stéttarinnar, slysatryggingunum, sigl-
ingalögunum og fjölda mörgum öðrum málum, sem mið-
uðu að því að bæta kjör sjómannanna, tryggja afkomu þeirra
og vernda aðstendendur þeirra fyrir örbirgð, þó að þeir sjálf-
ir félJu frá.
Alþyðublaðið
hefur háð þessa baráttu við hlið sjómanna-
samtakanna.
Alþýðublaðið er jafnframt því að vera málsvari hinna.vinn-
andi stétta orðið nýtízku dagblað, sem helzt enginn getur
án verið. Þetta er betur og betur að koma í ljós, því að út-
breiðsla Alþýðublaðsins hefur tvö- til' þrefaldast síðastliðin
tvö ár og útbreiðsla 'þess fer dagvaxandi.
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ