Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Qupperneq 25
^iiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
iiiiiiiiii11111111iiiii1111111111111nl■■■l■■iiii■■■■lll■■■lll■■•■■l■l•■l••■■■••l•••••■ll■••l••ll•■•m
Stjórn Sjómannasambands íslands 1972
Frá hægri: Hihnar Jónsson, form. S.R., Guðlaugur Þórðarson,
Keflavík, Ámi Yngvarsson, Akranesi, Sverrir Jóhannsson, Grinda-
vík, Pétur Sigurðsson, ritari, Rvík, Jón Sigurðsson, form. Rvík,
Jónatan Aðalsteinsson, Vestm.eyjum, Tryggvi Helgason, Akur-
eyri, Sigfús Bjamason, Rvík, Erlingur Viggósson, Stykkishólmi.
Á myndina vantar Magnús Guðmundsson Garðahreppi og Kristj-
án Jónsson, Hafnarfirði.
hefði verið hreyft við byssunum,
né neinu af þeim ógrynnum af byss-
um, sem þarna virtust vera í flökum.
Þetta voru víst allt járnbyssur og
kannski ekki í miklu verði, eða það
getur ekki verið, það væri bá búið
að hirða þetta góss.
Þegar ég var kominn á þessar slóð-
ir fór að vandast siglingin. Veðrið
var alltaf sama blíðan dag eftir dag
og viku eftir viku, en það var orðið
vandratað. Eg fann bara ekki nægi-
legt dýpi fyrir gömlu Sæbjörgu, sem
er dálítið djúprist. Mér hafði láðst
að byrgja mig upp með „special"
kort, og þó að yfirlitskortin sýndu
nægjanlegt dýpi, þá reyndist það oft
ekki svo, og ég var sem sé í vandræð-
um með að komast áfram. Þetta fór
því svo sem við mátti búast. Eg sigldi
í gegnum Exuma Sound og var kom-
inn næstum til eyjarinnar Eleutra,
sem er austust Bahamaeyjanna, þeg-
ar ég strandaði henni blessaðri, mjög
illilega á sandrifi, einar 3 sjómílur
frá ströndinni. Þama er svo til eng-
inn munur flóðs og fjöru, tæp tvö fet
á kvöldflóðinu og kannski hálft fet
á morgunflóðinu. Eg var í tvo daga
að baksa við að ná gonnunni á flot.
Sama blíðan hélzt og þetta átti nú
aldeilis við krakkana. Þau voru í
sjónum frá morgni til kvölds, þessa
daga, sem við stóðum föst á rifinu.
Á þessum þvælingi okkar um Mið-
jarðarhafið, við Kanaríeyjar og svo
um allt Karabiskahafið, þar sem
alltaf var hægt að busla í sjónum,
ef einhver stanz var, voru þau orðin
synd eins og selir. Þau voru alllan
daginn að leika sér í sjónum. Konan,
sem hafði verið með lífið í lúkunum,
þegar þau voru að klifra upp í reið-
ann eða príla eitthvað, og eins þeg-
ar þau fóru fyrst að synda burt
langar leiðir frá skipinu, var hætt að
líta upp. Það þýddi ekki neitt, enda
óþarfi ,þau lærðu fljótt, hvað þau
máttu bjóða sér. Maður reyndi þó
alltaf að fylgjast með kollunum, sem
maður sá hér og þar í kringum bát-
inn. Móðir þeirra var mikil sund-
manneskja sem ung stúlka og kenndi
þeim sund. Sjálf synti hún mjög
fallega og keppti oft í sundi. Hún
gat þvi kennt þeim strax réttu sund-
tökin og þau létu ekki undir höfuð
leggjast að æfa sig. Og þau höfðu
sannarlega tækifæri í þessu langa
strandi langt frá landi í hreinum og
hlýjrnn sjó. Strákarnir veiddu þarna
til matar fisk, vel ætan en afburða
ljótan. Þeir skutu hann með teygju-
byssu undir sjávarborðinu.---------
■>^«>e<>«««><>«>«>«><XXXX>«>«X
Fulltrúaráð
Sjómannadagsins
1972
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan:
Guðmundur H. Oddsson,
Ingólfur Stefánsson.
Vélstjórafélag íslands:
Tómas Guðjónsson,
Júlíus Kr. Olafsson, Daníel Guðmundss.,
Sveinn Jónsson.
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Pétur Sigurðsson, Hilmar Jónsson,
Björn Pálsson, Olafur Sigurðsson,
Sigfús Bjarnason, Oli Barðdal.
Stýrimannafélag fslands:
Guðlaugur Gíslason,
Guðmundur Hallvarðsson.
Skipstjórafélagið Kári, Hafnarfirði:
Kristens Sigurðsson, Svanberg Magnúss.
Skipstjórafélagið Ægir:
Einar Thoroddsen, Karl Magnússon.
Skipstjórafélag fslands:
Lárus Þorsteinsson, Theodór Gíslason.
Félag ísl. loftskeytamanna:
Henry Hálfdánsson, Tómas Sigvaldason.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar:
Kristján Jónsson, Ólafur Ólafsson.
Félag framreiðslumanna, S. M. F.:
Guðmundur H. Jónsson, Leifur Jónsson.
Félag matreiðslumanna:
Karl Finnbogason, Jón Pálsson.
Matsveinafélag S. S. f.:
Magnús Guðmundsson, Ársæll Pálsson.
Félag bryta:
Rafn Sigurðsson,
Hermann Hermannsson.
Stjóm SJÓMANNADAGSINS 1972:
Formaður: Pétur Sigurðsson.
Gjaldkeri: Guðmundur H. Oddsson.
Ritari: Kristens Sigurðsson.
Meðstjórnendur:
Hilmar Jónsson,
Tómas Guðjónsson.
><><><©«><>©<>©«>«x>$<><><><><><>«><><>«x
SJOMAN NADAGSBLAÐIÐ 1 1