Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 27

Sjómannadagsblaðið - 04.06.1972, Side 27
— svipuð tilmæli berist fjárveit- ingavaldinu um fjárhagsstuðning vegna námskeiðshalds um málefni aldraðra og undirbúning undir elliárin. Hér fer á eftir útdráttur úr fram- sögu Kaare Salvesen deildarsjóra, en mörg merk fræðsluerindi voru flutt á ráðstefnunni. Mig langar til að fara nokkr- um orðum um það hlutverk sem ellimálaupplýsingastarfsemi get- ur haft á félagssálfræðilegum grund- velli, hvemig hafa megi áhrif á fast- mótaðar skoðanir eldra fólks á ýms- um vandamálum sem koma í ljós á eftirlaunaaldri. Það fyrsta er kynn- ing og samband. Þeir sem enn eru ekki komnir á eftirlaunaaldur verða að gera sér grein fyrir að auðvelt er að einangrast í ellinni, en einnig er hægt að komast hjá því á ýmsan hátt t. d. með félagsstarfsemi (klúbbum) á árunum fyrir og eftir að eftirlauna- aldri er náð. Næsta atriði sem ég nefni er tómstundaiðja. Ellimála- upplýsingar eiga að taka það skýrt fram að slíkt starf er mikils virði sem tilbreyting til skiptis við starf sem veitir tekjur eftir að eftirlauna- aldri er náð. Þriðja atriðið, sem nauðsynlegt er að taka með, er að fjarlægja beyg manna við félags- legar stofnanir, en sá beygur mun aukast eftir því sem menn nálgast elliárin. Hönnungarlýsingar frá elli- heimilum fortíðarirmar munu eiga sinn snara þátt í þessum ótta. Við erum öll sammála um það að roskið fólk eigi að fá að búa á heimilum sínum eins lengi og það óskar þess sjálft, en þegar aðstæður eru orðnar þannig að ekki verður komizt hjá dvöl á stofnunum eða elliheimilum er ekki ástæða til að beygur og kviði fyrir aðstæðum sem enga stoð eiga sér í veruleikamnn bætist ofan á erfiðleikana við vista- skiptin. Það er staðreynd að margt roskið fólk unir betur á stofnunum er það hefir vanizí dvölinni þar, heldur en það hefir nokkurn tíma dreymt um, og þess vegna ber að veita þessar upplýsingar til þess að bægja frá ótímabærri sút og vanlíðan. Að lokum vil ég nefna upplýsing- ar fyrir aldrað fólk, sem sennilega er ekki auðvelt að koma í kring en það er það sem kalla mætti ,,Listin að lifa í ellinni.“ (Lífslist að liðnum degi mun Hamsun hafa nefnt þetta skeið). Ekki hef ég hér í huga jafnvægi hugans og sálarró, sem sumir hafa fengið í vöggugjöf og aðrir áunnið sér á langri ævi. Eg er að hugsa um þesskonar menningu sem allir geta tileinkað sér með þægilegri um- gengni við aðra, eðlilegri hjálpsemi, snyrtilegheitum og að nokkru leyti sjálfsstjórn. Ekki mun standa á því að sagt sé Ekki er hægt að ætlast til þess að gamalt fólk byrji á sjálfs- stjóm og sjálfsaga af tillitssemi við aðra. Það er að sjálfsögðu satt, en það er hægt að ætlast til þess að þeir sem nálgast eftirlaunaaldurinn athugi sinn gang og hugi að umhverfi sínu, með það í huga að margt roskið fólk verður meira einmana en efni standa til vegna þess að það kvart- ar um eitt og annað án afláts. Fólk missir vini og sambönd af því ekkert er gert til að halda slíku, er til óþæginda fyrir umhverfið vegna skorts á nákvæmum persónulegum þrifum o. s. frv. Mér verður hugsað til þess, sem elskuleg forstöðukona elliheimilis einusinni sagði: „Hvers vegna er gamalt fólk oft svona vont hvað við annað?“ Þessu má eflaust svara með sálrænni skilgreiningu og breytingu er fylgir elliárum. Hrörnun mun í mörgum tilvikum leiða til framkomu sem engin upplýsingastarfsemi fær breytt. En ekki fæ ég annað skilið en dálítið sé hægt að stuðla að hömlum ef við sem erum á miðjum aldri segjum við sjálfa okkur. Sann- arlega skal ég á eftirlaunaaldri gera mitt til þess að sýna öðrum þá fram- komu, sem ég óska eftir að aðrir sýni mér. Það er ef til vill ósennilegt að siíkur undirbúningur geti haft nokkra þýðingu þegar líkamleg hrörnun á sér stað, en ég held — þar til annað sannast — að einnig þetta atriði ætti að vera með í upp- lýsingum fyrir aldi’aða. Og þar sem við nú að meira eða minna leyti erum búin að koma okk- ur saman um starfsgrundvöll fyrir clliupplýsingamiðstöð, mun á hin- um Norðurlöndunum, eins og í Nor- egi, verða uppi á teningnum ýmis- leg skipulagsvandamál og spurning- ar varðandi stjómun. Fyrsta spumingin er: Hvort upp- lýsingaráð eða nefnd varðandi upp- lýsingastarfsemi ellimála á að vera tengd aðhlynningu aldraðra eða at- vinnulífinu, eða menntun fullorð- inna og alþýðuupplýsingastarfsemi. Sérfræðingar frá Bretlandi, sem við höfum haft samband við telja að ekki eigi að standa í neinu sam- bandi við aðhlynningu aldraðra, vegna þess að slíkt starf sé ekki að- laðandi í augum þeirra, sem helzt þarf að ná til með upplýsingastarf- semi, það er fólk á miðjum aldri. I Noregi höfum við ekki verið eins viðkvæmir fyrir því að nokkurt sam- band við starfsemina er stuðlar að umönnun aldraðs fólks fæli áhuga- menn frá upplýsingastarfinu. Eins og fjármálaráðherrann sagði mun yfirleitt vera litið á ellimálastarfsem- ina sem fyrirbyggjandi. En ellimála- nefndin hefir heldur ekki orðið neitt útibú frá hjúkrunarstarfi fyrir aldr- aða. Það sem einkennir samstarfs- nefndina er að hún er sjálfstæð með eins góðu sambandi við upplýsinga- starfið eins og umönnun aldraðra og samtök atvinnulífsins. Þegar um er að ræða atvinnulífið stendur og fell- ur starf nefndarinnar með fram- kvæmdasemi þessara aðila. I Noregi hefir „Alþýðusambandið“ falið skyldri starfsemi „Upplýsingasam- bandi alþýðu“ að vera málsvari vinnuveitenda þegar um er að ræða undirbúning elliáranna og viðskipti þess við sameiningarnefndina eru SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 13

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.