Eimreiðin - 01.03.1922, Page 1
eimreiðin
Jón helgi.
Æðsti prestur í þessu lífi og landlæknir í öðru lífi.1)
Eftir Steingrím Matthíasson.
I.
„En ]ón varð biskup at Hól-
um ok er nú sannheilagr“.
Gísls þáttur Ittugasonar.
Eg tek hér kæru áheyrendur úr pússi mínum tvö kerti og
læt þau í stjakana á púltinu, þ. e. altarinu fyrir framan mig.
Og þar eð mig vantar meðhjálpara kveiki eg sjálfur á kert-
unum. Geri eg þetta til dýrðlegrar minningar um hinn bless-
aða ]ón biskup.
Ef satt skal segja hafði eg heitið á Jón biskup, að brenna
honum til dýrðar þessum tveimur kertum ef hann sæi um að
hér yrði húsfyllir í kveld. Því miður hefir hann ekki orðið við
bessu áheiti. Það liggur við að hér hlusti tómir stólar.
Þetta gæti komið okkur til að halda um hinn sæla Jón líkt
°S Elías gat til um Baal »að hann sé á ferð, eða hann sé
sofnaður«. Eða víkur þessu þannig við, að svo sannheilagur
^iaður sem Jón biskup sé nú eftir 800 ár kominn svo hátt
sofar löndum«, til æðri himna, að við aumir jarðarþegnar fáum
ekki með neinum áheitum lengur til hans komist? Þetta skilst
mér vera í samræmi við nýjustu rannspknir spíritista.
Að vísu dettur mér annað í hug. Þar sem Jón helgi var
vanur svo langtum ríflegar útilátnum tólgarkertum í katólskum
s,ð þá hafi hann forsmáð mína vesölu sannlútersku kertistubba.
^ví það er víst, að fyrrum var alvanalegt að honum væru gefin
a^ar stór og myndarleg kerti. T. d. gaf fátæk kona honum
1) Erindi þetta, sem hér birtist nokkuð breytt og aukið, var haldið á
Se0 ára minningarsamkomu ]óns biskups er Stúdentafélagið á Akureyri
hélt í aprílmánuði 1921.