Eimreiðin


Eimreiðin - 01.03.1922, Page 6

Eimreiðin - 01.03.1922, Page 6
70 ]ÓN HELGI eimreiðiN látr faðir allra fátækra manna; huggaði ekkjur ok föðurlausa, ok enginn kom svá harmþrunginn á hans fund at eigi fengi föðurlega huggun a nokkura lund. „Hit sama var jafnan lítillæti hans ok huggæði, svá at hann mátti ekki aumt sjá. Hann fastaði löngum, vakandi bæði nætr ok daga, ok baðst fyrir, en gerði jafnan til nytsemdar nokkut svá at aldri fann fjand- inn hann iðjulausan. En hvat sem hann gerði, vóru hans varir aldri kyrrar at guðs lofi“. — En svo sem hirðirinn var, svo var hjörðin. Allir keptust unt að hlusta á og hlýða boði og banni hins blessaða ]óns. Agæt- ismenn komu til staðarins eins og Ríkini prestur og Gísli hinn gauski sem hjálpuðu biskupi til að gera garðinn frægan. —- Illugi prestur Bjarnarson hafði sýnt það örlæti og göfug- lyndi »fyrir guðs sakir ok nauðsyn heilagrar kirkju« at rísa upp af föðurleifð sinni og gefa Hólastað fyrir biskupssetur. Vandaða kirkju lét biskup gera á Hólum og valdi til besta smið sem þá var völ á, en lét sækja viðinn sunnan Kjalveg frá Eyrarbakka. Latínuskóla og prestaskóla stofnaði hann á staðnum og til þessarar menningarmiðstöðvar streymdi fólkið hvaðanæva af öllu Norðurlandi sumpart til að sækja tíðir um hátíðir og er sagt að stundum hafi þar á páskunum komið »eigi minna en fjögur hundruð bæði kvendi ok kallar«, en sumpart flyktist fólk til staðarins sem tóku þar bólfestu og bygðu sér þar einsetukofa til að njóta blessunar biskups. Og ekki vantaði gestrisnina hjá þeim góða Jóni. Að vísu höfðu margir vistir með sér, þeir er til tíða komu, »en hinir voru þó fleiri, er herra biskup fæddi fagurliga, bæði með líkamligum krásum ok andligum, ok þeir styrktir biskupligr' blessan fóru fagnandi heim til sín«. Ekki má heldur gleyma því stórvirki Jóns, að hann stofn- aði fyrstur klaustur og munkareglu hér á landi þar sem hann kom á fót Þingeyraklaustri. Eigum við honum þvl fremur öðrum að þakka hið iðjusama mentalíf, sem í klaustr- unum þróaðist og varð ómetanlegt fyrir varðveislu fornbók- menta vorra. Svo segir Gunnlaugur munkur: Hér mátti sjá um öll hús biskupsstólsins'mikla iön ok athöfn: Sumir lásu heilagar ritningar, sumir rituðu, sumir sungu, sumir námu ok surmr

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.