Eimreiðin - 01.03.1922, Page 13
eimreiðin
JÓN HELQI
77
tilraun er gjörð annaðhvort með þeim tækjum og lyfjum, sem
læknar venjulega nota eða fyrir sterk sálarleg áhrif, dáleiðslu,
bænir, einbeittar skipanir o. fl. Trúin getur flutt fjöll í okkar
ímyndun en ímyndunin getur haft gagngjörð áhrif á tilfinninga-
taugar, alt taugakerfið og alt líffærastarfið svo að gjörbreyting
getur átt sér stað. Kraftar í blóðinu losna úr læðingi og vinna
ýmist snögglega éða- á skömmum tíma að fullum bata. Þetta
þekkja allir læknar meira og minna af eigin reynd en það
er mjög misjafnt gefið okkur að kunna að beita þessum
lækningaraðferðum.
Hins vegar dylst engum læknisfróðum manni, að mikið af
þeim krankleikum sem helgisögurnar segja frá, eru kvillar,
sem batnað hefðu sjálfkrafa þó engra ráða hefði verið neytt
eða segjum eins vel af homoeopatadropum eða áhrifalitlum
allopatalyfjum, sem gefin eru sjúklingum til huggunar, en ekki
af því að þeim fylgi neinn sérstakur lækningakraftur. Sem
betur fer, er mannlegur líkami svo vel af guði gjörður, að
hann getur lyfjalaust losað sig við margskonar sóttir, sem á
hann stríða. Það þarf að eins á þolinmæði að halda meðan
sá guðdómlegi náttúrunnar kraftur er að verka. Og því meiri
þolinmæði þarf, sem þeim umbrotum fylgja margskonar þján-
ingar, sótthiti, beinverkir, kvalir, kveisa, uppsala, lífsýki o. s.
frv. En þolinmæðin þrautir vinnur allar eða margar að minsta
kosti og sem betur fer höfum við læknar fengið smámsaman í
hendur ýms dásamleg lyf, sem draga úr hita, þjáningum og
tnargskonar eymd. Þessi lyf þykja nú öllum ómissandi, sem
reynt hafa þeirra sefandi kraft og þó þau ekki nema stundum
hafi samtímis læknandi áhrif, svo að sjúkdómurinn styttist, þá
eru þau þó eigi að síður mestu veltiþing, hrein náðarmeðul
9uðs. Slík lyf þektust ekki á dögum Jóns og Þorláks hins
helga. Aðalstarf læknisins þá var að reyna að hugga og hug-
hreysta, og glæða trú og von á sigur þess góða. Þá komu
bænirnar sér vel eins og reyndar enn þann dag í dag, og það
bekkir af eigin reynslu hver sá, sem átt hefir góða foreldra
°9 lært að lesa bænir. Því þó margur finni til efasemda um
ab bænin sé annað en hugargrufl, samtal við sjálfan sig eða
barnahjal út í bláinn — þá skal enginn neita krafti þeirra
hugarhræringa fyrir sálarfrið og vellíðan — að minsta kosti