Eimreiðin - 01.03.1922, Blaðsíða 16
80
JÓN HELGI
eimreiðiN
ingaröldur til siðferðisbetrunar — stöðugt nýja lífsvekjara,
þrumur og eldingar og hvellan lúðurþyt.
Ahrifanna gætir þó bylgjuna lægi. — Þroski þjóðanna er
jafn miklu hægfarari en einstakra manna sem þroskaskeið
þjóðanna er margfalt lengra en einstaklinganna. Oldurnar ber-
ast smátt og smátt eins og hljóðöldur frá voldugri klukku-
hringing víðsvegar um veröldina og áhrifanna á þessari jörð
gætir að minsta kosti meðan »orðstír ekki deyr«.
Lengi skapast mannshöfuðið. Siðferðisþroskinn er hægfara,
en kemur smám saman eins og vit og vöðvaþróttur við stæl-
ingu fyrir ísaldir, harðindi og harðrétti, á þúsundum ára. I
rauninni furðulegt hve vel gengur, því aldirnar eru ekki ýkja-
margar síðan maðurinn var óargadýr.
Trúarvakning og hrifning af helgum hugsjónum er nauð-
synleg við og við dottandi mannkyninu svo það falli ekki i
fasta svefn, heldur vakni betur og betur til sannfæringar um
hve gaman er að vera glaðvakandi og að vaka allir í sarn-
einingu og vinna allir saman að því að verða hvor öðrum
góðir og gagnlegir.
Þá mun Askur Vggdrasils þ. e. lífið í heild sinni, lífsmeiður-
inn, sem við allir erum limir og lauf á — vaxa og blómgast-
Til þessa þurfum við trúarvekjendur og forustumenn í Hk-
ingu við Jón helga.