Eimreiðin


Eimreiðin - 01.03.1922, Síða 17

Eimreiðin - 01.03.1922, Síða 17
eimreiðin Prófiö. Saga eftir J. Magnús Bjarnason. Fyrsta sumarið, sem eg áttr heima í Vancouverborg í British Columbia, bjó eg í Kitchener-stræti, sem reyndar hét þá alt öðru nafni. Þá kyntist eg manni, sem hét Ernest Hunter. Hann átti heima í snotru húsi hinum megin í strætinu og beint á móti húsi því, er eg bjó í. Hann var um þrítugt, þegar saga þessi gjörðist, og var ókvæntur, en móðir hans og systir voru þar hjá honum. Hann var fremur lítill vexti, dökkur á brún og brá, en þó fríður sínum, þægilegur í við- móti, og sérlega kvikur á fæti. Mér var lengi ekki ljóst, hvaða atvinnu hr. Hunter stundaði. Hann fór á stað til vinnu sinnar á ýmsum tímum sólarhrings- ins; stundum í býtið á morgnana, stundum um hádegið, og stundum seint á kvöldin. Ekki gat eg á neinn hátt dregið það af klæðaburði hans, í hvaða stöðu hann var, því að stundum var hann búinn eins og algengur verkamaður, þegar hann fór til vinnu sinnar; stundum bar hann smíðatól, með köflum var hann í einkennisbúningi farstjóra á strætisvögnum; oft leit svo út sem hann kæmi af dýraveiðum eða úr gullleit; og margsinnis var hann til fara eins og hálaunaður embættismaður. Og þóttist eg vita, að hann væri ekki við eina fjölina feldur, og gæti lagt á margt »gjörva hönd«. — En þegar hann var heima, þá var hann öllum stundum í garðinum, sem var á bak við hús hans. í rauninni hafði hann gjört allan þann reit, sem hús hans stóð á, að blóma- og jurtagarði. Hann ræktaði hvern einasta þumlung, sem ræktaður varð af þeim reit, alt > kringum húsið. Hann fylti, meira að segja, ótal trog og Samlar skjólur og könnur með mold, og raðaði þeim á tröpp- urnar og loftsvalirnar og gluggasyllurnar, og plantaði þar blóm °S jurtir af ýmsum tegundum. Og öllum þeim jurtum og öll- þeim blómum skipaði hann í flokka með vísindalegri ná- kvæmni, og hélt glöggva skýrslu yfir það alt, alveg eins og 6

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.