Eimreiðin


Eimreiðin - 01.03.1922, Side 22

Eimreiðin - 01.03.1922, Side 22
86 PRÓFIÐ eimreiðin dyrunum; hr. Hunter settist nokkru innar; en eg staðnæmdist fyrir framan stóra auglýsingu, sem hékk á veggnum nærri dyr- unum, og lét sem eg væri að lesa af kappi. Eg vildi sem sé vera svo nærri Sigurði, að eg gæti heyrt, hvað við hann yrði sagt. Rétt í því, að klukkan í turninum sló átta, gekk ung Ind- íánakona inn um aðaldyrnar á skálanum. Hún var fremur lítil vexti, en hvatleg á fæti, og hafði yfir sér ákaflega stórt sjal. Hún staðnæmdist rétt fyrir innan dyrnar og leit alt í kringum sig. Ait í einu kom hún auga á Sigurð, og eins og kiptist við um leið. Hún horfði á hann dálitla stund, gekk svo til hans hægt og hljóðlega og sagði í lágum hljóðum með út- lendum hreim: »]óta Kappa, þekkir þú mig«? »Eg heiti ekki Jóta Kappa«, sagði Sigurður, stóð upp, lyfti hattinum og hneigði sig hæversklega fyrir hinni ungu Indíána- konu, eins og hún hefði verið hvít kona af aðalsættum. Konan horfði þegjandi á hann litla stund, laut svo ofan að honum og sagði: »Ef þú ert ekki hann Jóta Kappa, þá ertu samt svo líkur honum, að líf þitt getur vérið í hættu því að hann á volduga fjandmenn, sem elta hann land úr landi. — Flý þú þessa borg, ungi maður! Hér er þér ekki holt að búa. Flý út í skógana til bræðra minna, Indtánanna, og láttu skóginn vera þér vígi«! »Eg er þér þakklátur fyrir að vilja aðvara mig« sagði Sigurður blíðlega »en eg get fullvissað þig um það að eg er í engri hættu«. »Þú heldur að Jþú sért óhultur«, jsagði konan í enn lægr* róm en áður. »En vita skaltu, að menn þeir, sem þykjast vera vinir þínir, eru í rauninni 'svarnir óvinir þínir og reyna á allar lundir að leiða þig á glapstigu. Og trú þú mér, þegar eg segi þér, að hin unga kona, sem fer með þér í leikhúsið og situr þar hjá þér og sóar út fé þínu, er í insta eðli sínu veru- leg norn, sem hatar þig af öllu hjarta sínu og allri sálu sinni«- »Þú fer hér vilt, góða kona«, sagði Sigurður; »eg hefi aldrei farið í leikhús í þessari borg, og þú hefir aldrei séð mig hér á ferð með neinni konu«.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.