Eimreiðin - 01.03.1922, Page 35
eimreiðin
PÁFASKIFTIN
99
dag kemur svartur reykjarhnoðri upp úr honum, og múgurinn
dreifist hljóður í allar áttir.
En inni fyrir sitja kardínálarnir, þungt hugsandi. Þeim er ekki
sama hver hlýtur það veglega sæti, að vera jarl Krists á jörðu.
Nýr páfi!
Á fjórða degi eftir að kardínálarnir voru lokaðir inni til
l<osningarinnar, 6. febr. kl. II33 sá mannfjöldinn lítinn hvítan
Teykjarhnapp koma upp úr strompinum.
»Hvítur, hvítur! Hann er hvítur!« æpti mannfjöldinn. Fregnin
flaug eins og eldur í sinu, og úr öllum áttum tók fólkið að
streyma saman á Péturs-plássinu. Á skammri stundu voru þar
saman komnar um 100 þúsundir manns.
Inni fyrir var nú líka nóg að gera. Siðameistaranum var
sagt að vera viðbúinn. Kardínál-djákninn gekk fram fyrir hinn
útvalda, Ratti kardínála, og sagði:
i>Acceptasne electionem in summum pontificem?“, (þ. e. tek-
urðu kosningunni til æðsta prests?).
Páfinn nýkosni svaraði venju samkvæmt, að hann kendi sig
ekki verðan hinnar miklu virðingar, en hann beygði sig fyrir
vilja guðs og hins heilaga ráðs.
Sem svar upp á aðra spurningu, kvaðst hann taka sér páfa-
nafnið Píus XI.
Að því loknu var hann leiddur inn í annað herbergi, ,og
skrýddur páfaskrúða, hvítum og rauðum, og tignarmerkjum
þeim er honum fylgja. Því næst gekk hann aftur inn í six-
tínsku-kapelluna og settist í burðarstólinn glæsilega, sedia ge-
statoria, en kardínálarnir veittu honum fyrstu lotningu með
tví að kyssa á hönd honum, en hann gaf þeim friðarkossinn.
Uti á Péturs-plássinu stóð múgurinn í hellirigningu og beið.
Loks opngst hinn stóri miðgluggi á framhlið kirkjunnar,
milH súlnanna. Þjónar koma út og breiða á steinsvalirnar
fádæma stórt klæði, hvítt með rauðum bekk, og er á það
d^egið skjaldarmerki páfans með kórónunni þreföldu og
JyWunum. Þeir hverfa, en út kemur æðsti kardínáldjákn-
^nn. Bisleti.
Dauðaþögn færist yfir mannfjöldann.