Eimreiðin - 01.03.1922, Síða 44
108
EÐLI OG ORSAKIR DRAUMA
eimreiðin
Lifnaðarhættir manna, andlegur þroski, lífskoðanir o. fl-
setur mark sitt á draumana, eða hefir áhrif á innihald þeirra.
Draumar fara einnig eftir aldri og kynferði manna. Kaup-
staðadreng, sem aldrei hefir í sveit komið, dreymir eigi um
sveitastörf og leiki og áhugamál sveitabarna: hjásetur, frá-
færur, fjallgöngur, réttaferðir o. s. frv. Og sveitadrenginn.
sem aldrei hefir komið í kaupstað, dreymir síst um leiki
kaupstaðabarna og götulíf þeirra. En sama má segja um
fulltíða menn. Draumar þeirra eru mjög litaðir af atvinnu
þeirra, lifnaðarháttum, hugsunum og náttúru-umhverfinu. Par'
ísarbúa gæti naumast dreymt bjargfuglaveiðar, heybinding-
ar, eða vetrarhjástöður yfir sauðfé. Þetta getur IslendinS
dreymt um.
Flesta menn dreymir það síst, sem þeir vilja láta sig dreyma
um, fyr en þá máske eftir langan tíma. Þá getur því skotið
upp að meira eða minna leyti, í sambandi við eldri og yngrl
minningamyndir vitundarinnar. Þó geta stöku menn látið siS
dreyma sumt það, er þeir óska, með æfingu og einbeitinS
hugans. En þetta má heita undantekning.
Unga menn dreymir oft, að þeir klifra hátt, hrapa eða
svífa um í loftinu, laust við jörðu. V/afalaust stafar þetta af
óreglulegri blóðrás í svefni. En hún er að vissu leyti háð
líkamsstellingum og hreyfingum hins sofandi manns. LJnS'
lingar, eða ungir menn, hreyfa sig meira og liggja sér óhseg1-3
í svefni, en fullorðnir menn. — Eg hefi veitt því eftirtekt,
hvernig eg ligg, þegar mig dreymir þessháttar drauma. Oftast
hrapa eg þá úr sömu klettunum, sem eg klifaði oft í á ynSrl
árum, þegar eg var að smala. — Þar var eg eitt sinn hs
kominn. Það bergmálar í undirvitundinni aftur og aftur.
Af óreglulegri blóðrás og erfiðri meltingu dreymir menn
líka oft ljóta eða hræðilega drauma, engu síður en í hitasótt,
eða því, að sofa í illu andrúmslofti. Sömuleiðis ef menn liSSl3
svo, að blóðrásin truflist meira eða minna, t. d. þegar 0
mikið blóð rennur til heilans, eða þrengir um andardráttinn-
— Þetta hefi eg sjálfur reynt og athugað um mörg ár.
Stundum hafa menn hugboð um það í draumi, að þa
dreymi það, sem þeir sjá og heyra. En óljóst er þetta °S