Eimreiðin - 01.03.1922, Qupperneq 45
EIMREIÐIN
EÐLI OG ORSAKIR DRAUMA
109
slitrótt, og maðurinn þá eins og milli svefns og vöku. Eink-
um ber þetta við, þegar menn dreymir ljóta drauma. Þá alt
1 einu veit maður, að þetta er bara draumur, og gleðst af
Því. En í sömu andránni er maður óviss í þessu, og óttinn
heldur áfram að vera í meðvitundinni. — Komið getur það
líka fyrir, að menn dreymi það, að þá hafi dreymt draum,
sem þeir eru að hugsa um og reyna að ráða.
Það má heita undantekningarlítið, að það, sem maðurinn
hatar í vöku, telur ljótt eða ilt, þykir eins í draumi. Fegurð-
arvitið og fegurðarþráin nýtur sín einnig að jafnaði eins í
draumi og vöku. Það mun líka sjaldan koma fyrir, að menn
Sleymi sjálfspersónu í draumi, tapi hugmyndinni um sjálfsveru
sma. Aldrei finst manni í draumi maður vera annað en
ffiaður er, nema í hitasótt, eða ef sálarlífið að öðru leyti er
iruflað eða sjúkt. Þá geta menn gleymt sjálfsverund sinni,
líkt og á sér stað í dáleiðslu. — Það er einnig mjög merki-
le9t, að allar tilfinningar manna í draumi eru miklu næmari
°9 sterkari en í vöku. Sorgin og gleðin er þá einnig dýpri
°9 áhrifameiri. Þessu er oftast eins farið á dáleiddum mönn-
Urn. á vissu dáleiðslustigi.
Draumhraðinn er venjulega ótrúlega mikill. Á 1—2 sek.
Setur mann dreymt langa og margbrotna drauma. Á einu
au2abragði geta menn þannig lifað upp langan kafla æfi
Slnnar, jafnvel frá barnæsku til fullorðinsára. Á svipstundu fer
^ngur manna í draumi landshornanna á milli, um þekta og
°t>ekta staði, eða jafnvel úr einu landi í annað. Hinum sof-
Jndl manni finst hann fara um þessa fjaílægu staði. Þeim
reSður fyrir sem leiftri í huga hans, eða undirvitund.
Dít getur sami draumurinn farið fram á tveimur eða fleiri
siÖðum í senn. Einnig geta í draumi tvinnast saman tveir
eða fleiri staðir og mörg atvik úr lífi manns. Vfir þessu
Undrast maður ekki í svefninum, og ekki heldur því, þótt
e*tthvað ónáttúrlegt beri fyrir. Sofandi mann vantar alla dóm-
9reind og skynsamlega yfirvegun. Hann undrast ekkert yfir
Pessu ódæma draumarugli, þar sem skyldu og óskyldu er
ru9að saman og úr því skapaðar margskonar kynjamyndir
°9 vitleysa.