Eimreiðin


Eimreiðin - 01.03.1922, Síða 49

Eimreiðin - 01.03.1922, Síða 49
EIMREIÐIN EÐLI OG ORSAKIR DRAUMA 113 syngja ýmist með aftur eða opin augun. Aðrir klæða sig og ganga út eða fara til venjulegrar vinnu sinnar. Þeir leysa verk sitt eins vel af hendi og þegar þeir eru vakandi. »Kristinn Prédikari« í Skagafirði, prédikaði í svefni eða messaði yfir mörgu óþektu fólki, sem fyrir hann bar. »Drauma-Jói« er ekki reglulegur svefngöngumaður, en hann talar upp úr svefni, °2 svarar spurningum manna. Hann er líka öðrum fremur tjarvís í svefni. — Þorleifur í Bjarnarhöfn var fjarvís í vöku. Sumir svefngöngumenn muna margt það, sem fyrir þá ber 1 svefni, en aðrir muna það lítið. Stúlka nokkur á Englandi, sem gekk í svefni og vann þá ýms heimilisstörf, mundi ekkert Um slíkt þegar hún vaknaði. Eitt sinn var farið með hana í bessu svefnmóki á kvöldsöng í kirkju. Meðan á messunni stóð sat hún grafkyr og virtist taka vel eftir öllu sem presturinn Sagði. Næsta dag í vöku mundi hún ekkert um þessa kirkju- eða neitt sem hún heyrði. En þegar hún næsta kvöld Sekk í svefni þuldi hún upp úr sér ræðu prestsins orðrétt. Maður einn af Vesturlandi gekk í svefni. Eitt sinn gekk hann í því ástandi út fyrir túnið, á heimili sínu, og staðnæmd- ,st við hrífuskaft sem lá þar. Hann stökk yfir það, og hélt Syo lengra. Þá kom hann að hrosshaus og staðnæmdist við hann; hausinn var gamall og skininn. Þar áttu maðkaflugur ■°^al sitt og sungu dátt og hoppuðu. Þetta var um miðjan túnaslátt. Svo gekk maðurinn heim og svaf vanalegum svefni Utls hann vaknaði. Þeir, sem séð höfðu ferðalag hans, spurðu hann hvað hann hefði dreymt. Hann dreymdi langan og marg- ^otinn draum. Aðal þættir hans voru þeir, að hann kom í Syofninum að djúpum læk og stökk yfir hann. Síðan kom hann að stórhýsi og þar var margt manna með söng og gleði- a,um- Inn í þetta fléttaðist margt frá æskudögum hans, og pssu óviðkomandi. Aðal-atriðið er það, að hrífan varð að ®k, hrosshausinn að stórhýsi og flugurnar að kátum, syngj- andi mannverum! — Lítill var lopinn, en drjúgt úr honum sPunnið. Stundum fara menn með vísur og kvæði í svefni, sem þeir j.Unna ekki í vöku, né neinn viðstaddur. Þeir jafnvel syngja 9> sem þeir ekki áður kunna þó þeir í vöku geti ekkert SUugið. í svefninum syngja þeir vel. — En einhverntíma hefir 8

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.