Eimreiðin - 01.03.1922, Page 53
eimreiðin
MANNTAFL
117
Síðan Taflfélag Reykjavíkur var stofnað hefir það sífelt
starfað. — Árið 1918 var í fyrsta sinn háð kappskák fyrir
alt Island, og 1. verðlaun voru taflborð úr marmara frá W.
Fiske og titillinn skákmeistari íslands. — Borðið er þó sífelt
e*3n Taflfélags Reykjavíkur.
I vetur 25. mars hófst 10. skákþingið og var eins og síð-
astliðið ár kept í tveim flokkum, 1. og 2. flokki. Urðu þeir
^skákmeistarar íslands«, Stefán Ólafsson fyrir I. flokk, og
Bjarni Pálsson fyrir II. flokk.
Enginn vafi er á því, að skákþingið er hin mesta lyftistöng
fyrir skáklistina á íslandi og nær það þó hvergi .nærri til-
9angi sínum sökum þess hve samgöngur vorar eru slæmar
°9 þar af leiðandi örðugt fyrir utanbæjarmenn um þátttöku.
Af skákfélögum á íslandi má telja Taflfélag Akureyrar öfl-
u9ast næst Taflfélagi Reykjavíkur. Félag það hefir mjög góða
taflmenn í sínum hóp.
Undanfarin 3 ár hafa þessi tvö félög .teflt kappskák gegn-
Urn síma einu sinni á vetri og hefir það mjög orðið til að
Vekja áhuga og auka viðkynningu sunnlenskra og norðlenskra
*aflmanna.
Enn sem komið er hafa íslendingar ekki eignast afburða
^aflmann á borð við þá sem lengst hafa komist af annara
bjóða taflmönnum. Þó eru hér til nokkrir 1. flokks taflmenn.
^•n einkum stöndum við að baki öðrum þjóðum að því er
Sr*ertir átgáfu skákbóka.
I öllum menningarlöndum eru árlega gefin út tímarit og
baekur um skák í stórum stíl. Hjer er það að kalla má ókleift
^ar sem bókaútgáfa er mjög dýr, en kaupendur fáir. — Til þess
mönnum gefist þó kostur á að sjá hið helsta sem íslenskir
jaflmenn hafa upp á að bjóða, hefir Eimreiðin lofað að flytja
esendum sínum eftirleiðis sitt af hverju úr íslensku skáklífi.
Þ.