Eimreiðin - 01.04.1946, Síða 18
82
YIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
þjóða. Þessar raddir hefur þó ekki tekizt að kæfa. Eftir
sjö mánaða þögn hefur ríkisstjórnin loks, nú við umræð-
ur alþingis um vantraust á ríkisstjórnina hinn 26. og 27.
þ. m., leyst frá skjóðunni, með skýrslu þeirri, er forsætis-
og utanríkismálaráðherra Ólafur Thors gaf þá í málinu.
Skýrsla stjórnarinnar sýnir, að Bandaríkjastjórn hafi
hinn 1. október 1945 farið fram á að hefja umræður við
ríkisstjórn íslands um leigu á bækistöðvum hér á landi.
Þessu svaraði ríkisstjórnin, eftir 5 vikna umhugsun, á þá
leið, að viðtal gæti hún að vísu veitt um upptöku Islands
í Sameinuðu þjóðirnar, en ísland vildi gerast meðlimur
þeirra og taka á sig þær kvaðir, sem því fylgdi, — sam-
kvæmt hvaða heimild, veit maður ekki, því þetta er mál,
sem íslenzka þjóðin hefur alls ekki verið spurð um, enn
sem komið er. Hinsvegar lýsti stjórn íslands yfir því
munnlega, að viðræður gætu ekki hafizt á þeim grundvelli,
er Bandaríkin hefðu óskað í erindi sínu dags. 1. október
1945. Virðast þessar undirtektir hafa leitt til þess, að
Bandaríkjastjórn hafi misst áhuga fyrir því að fá hið uffl-
beðna viðtal um málið, og 8. dezember f. á. símar sendi-
herra íslands í Washington ríkisstjórninni, að Bandaríkja-
stjórn hafi „fallizt á að stöðva málið, að minnsta kosti í
bili. Síðan hefur ekkert gerzt í málinu.“
Þannig lýkur skýrslu utanríkismálaráðherra við van-
traustsumræðurnar hinn 26. þ. m.
Svo sem vænta mátti hafa útdrættir úr skýrslunni verið
birtir með stórum, feitletruðum fyrirsögnum á forsíðum
sumra blaðanna í Evrópu. Og strax daginn eftir að hún ei'
gefin, kemur fregn frá Danmörku, birt í Ríkisútvarpi ÍS-
iands í gær (einkaskeyti frá Kaupmannahöfn), um, að
íslendingar séu reiðubúnir að afhenda Sameinuðu þjóðun-
um herstöðvar á íslandi, jafnframt er þess getið, að Rúss-
ar muni krefjast þess í öryggisráði Sameinuðu þjóðannn,
að Bandaríkin fari þegar í stað með leifar hers síns af ís"
landi.
Það er þá þannig komið, að verði svo haldið fram stefn-
unni sem nú horfir, getur íslenzka þjóðin átt von á al-
þjóðaher Sameinuðu þjóðanna í herstöðvar þær, sem Bret-